Innlent

Meiri umferðarþungi fyrir verslunarmannahelgina í ár

Birgir Olgeirsson skrifar
Búist er við að umferðin fyrir verslunarmannahelgina í ár verði talsvert meiri en í fyrra.
Búist er við að umferðin fyrir verslunarmannahelgina í ár verði talsvert meiri en í fyrra. Vísir/Daníel
Samkvæmt umferðarteljara á Hringvegi við Geitháls austan Elliðavatns hafði umferð í dag út úr höfuðborginni aukist um rétt rúm þrettán prósent frá miðnætti til klukkan ellefu í dag miðað við sama tímabil á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgina á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni en umferðardeild Vegagerðarinnar áætlar að umferðin austur fyrir fjall geti orðið um 10 til 12 prósentum meiri nú í dag en hún var á sama degi á síðasta ári á þessum talningarstað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×