Innlent

Meira malbikað frá Mývatni á Kópasker

Kristján Már Unnarsson skrifar
Framkvæmdir við Dettifossveg, Kjósarskarðsveg og Uxahryggjaveg verða boðnar út á næstu vikum vegna 1.800 milljóna króna innspýtingar sem ríkisstjórnin samþykkti í dag til brýnna úrbóta á vegakerfinu. Þetta kom fram í viðtali við Ólöfu Nordal innanríkisráðherra í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

„Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker,“ syngur Helgi Björnsson í vinsælu dægurlagi þessa dagana. Til að komast þá leið þarf að skrölta um holótta og niðurgrafna malarvegi. En það horfir nú til bóta, með þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar.

„Við erum að bæta 1.800 milljónum í samgöngumál fyrir árið 2015 sem við erum að setja til brýnna vegaframkvæmda. Þar erum við að horfa til vega sem eru tilbúnir í útboð núna strax svo hægt sé að hefja framkvæmdir. Þar horfum við á samspil mikilvægra samgönguframkvæmda og ferðamála,“ segir Ólöf Nordal.

Frá lagningu nýja Dettifossvegarins vestan Jökulsár á Fjöllum árið 2009.Mynd/Stöð 2.
Mest af aukaframlaginu, eða 800 milljónir, fer í að byggja upp Dettifossveg, reyndar ekki hjá Grímsstöðum, heldur að vestanverðu við Jökulsá á Fjöllum og verður drifið í að klára næstu áfanga, milli Ásbyrgis og Hljóðakletta. Áður var búið að leggja fyrsta áfanga vegarins, frá hringveginum á Mývatnsöræfum að Dettifossi.

Þá verða Kjósarskarðsvegur og Uxahryggjavegur byggðir upp sem þýðir að nýjar tengingar fást milli Borgarfjarðar og Suðurlands sem ráðherra segir mjög mikilvægar til að flytja ferðamenn á milli svæða. Þá fara 500 milljónir króna aukalega í viðhald vega.

Ráðherrann kynnir einnig samgönguáætlun til næstu fjögurra ára. Þar ber hæst að hefjast á handa við Dýrafjarðargöng árið 2017. En getur ráðherrann þar með sagt Vestfirðingum að það verði farið í Dýrafjarðargöng á þarnæsta ári?

„Ég get að minnsta kosti sagt að það stendur í tillögu að samgönguáætlun, sem núna er að birtast þinginu. Síðan er það auðvitað þingsins að taka ákvarðanir. En forgangsröðunin er í þessa átt; að Dýrafjarðargöngin eru næst.“

Séð að Dýrafjarðarbrú. Jarðgöngin verða grafin í gegnum fjallið handan brúar og yfir í Arnarfjörð.Mynd/Stöð 2.

Tengdar fréttir

Niðurskurðarhnífur skar Dettifossveg

Bundið slitlag sem bætist við þjóðvegakerfið á þessu ári verður að öllum líkindum það minnsta í nærri fjörutíu ár.

Hálfur Dettifossvegur verri en enginn

Ferðaþjónustuaðilar á norðausturhorni landsins óttast hrun, þegar bara hálfur Dettifossvegur verður opnaður meðfram Jökulsárgljúfrum næsta sumar, og segja að ferðamennirnir muni sleppa Ásbyrgi og byggðunum við norðurströndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×