Golf

Meira fé og fleiri stig í boði fyrir Ólafíu á risamótinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að gera frábæra hluti.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að gera frábæra hluti. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að brjóta blað í golfsögu Íslendinga en í gær var tilkynnt að hún vann sér inn að spila á KPMG LPGA-meistaramótinu í Chicago um næstu helgi en það er eitt af fimm risamótunum í kvennagolfinu. Hún tekur því fyrst allra Íslendinga þátt í risamóti í golfi.

Þetta er næststærsta og næstelsta risamótið í kvennagolfinu en bara opna bandaríska meistaramótið þykir stærra. Þarna skipta kylfingar með sér 3,5 milljónum dollara í verðlaunafé en sigurvegarinn fær 525.000 dollara.

Ólafía mætir væntanlega full sjálfstrausts til leiks eftir mjög góða spilamennsku á Walmart-mótinu á LPGA-mótaröðinni um helgina. Hún lauk leik þar í gær á fjórum höggum undir pari og náði sínum næstbesta árangri í mótaröðinni. Ekki slæmt veganesti það.

„Þetta er náttúrlega afrek. Hún er að brjóta blað. Það hefur enginn gert þetta áður. Það er stórkostlegt í sjálfu sér,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir, fjórfaldur Íslandsmeistari í höggleik og einn besti kvenkylfingur Íslandssögunnar um árangur Ólafíu við íþróttadeild 365 en báðar eru úr Golfklúbbi Reykjavíkur.

„Þetta er annað stærsta mótið ef við horfum til peninganna sem eru í boði. Það er um helmingi meira af fjármunum í verðlaunafé í þessu móti heldur en þessum hefðbundnu. Þetta er bara æðislegt. Hún er komin þangað sem hana hefur alltaf dreymt um að vera.“

Mótið er stórt og gefur ekki bara meiri pening heldur líka fleiri stig sem skiptir máli.

„Það eru ekki bara meiri fjármunir í boði á svona risamóti heldur líka fleiri stig sem þýðir að Ólafía þarf ekki að standa sig jafnvel til að fá fleiri stig. Það er mjög mikilvægt. Hún er í 134. sæti á stigalista mótaraðarinnar og vafalítið á hún eftir að hoppa upp listann,“ segir Ragnhildur en Ólafía þarf að klifra ofar á stigalistanum til að halda LPGA-kortinu sínu. KPMG-mótið hjálpar þar til.

Ólafía missti af nokkrum niðurskurðum eftir góða byrjun á mótaröðinni en Ragnhildur segir það geta komið fyrir alla.

„Þetta er miklu meira en bara tölur á blaði. Það er svo margt sem hefur áhrif á okkur þegar er komið á svona stór mót. Hún hefur líka verið í meiðslum og var með taugaklemmu í öxl sem er að lagast. Ég talaði við pabba hennar og hún fann ekkert fyrir því núna. Hún er á réttri leið,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×