Erlent

Meira en helmingur hinna látnu sagður vera á barnsaldri

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Kistuberar berjast við tárin í jarðarför fórnarlamba árásarinnar í Gaziantep.
Kistuberar berjast við tárin í jarðarför fórnarlamba árásarinnar í Gaziantep. Nordicphotos/AFP
Af þeim 54 sem féllu í sprengjuárásinni í Tyrklandi á laugardaginn voru 29 undir átján ára aldri. Þrettán voru kvenkyns og þá eru 66 enn á spítala. Þar af eru fjórtán í lífshættu. Þessu greindu lögregluyfirvöld í Tyrklandi frá í gær en á laugardag réðst árásarmaður á kúrdískt brúðkaup í borginni Gaziantep og sprengdi sig í loft upp.

Þá greindi blaðamaður New York Times frá því að tvö fórnarlambanna hafi verið fjögurra ára, tvö sjö ára, tvö níu ára, eitt tíu ára og sex ellefu ára.

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði á blaðamannafundi á sunnudag að árásarmaðurinn hafi verið barn á aldrinum tólf til fjórtán ára. Þá sagði Erdogan árásarmanninn hafa verið í slagtogi með hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Gaziantep er nærri landamærunum að Sýrlandi og vitað er að hryðjuverkamenn Íslamska ríkisins halda þar til. Erdogan nýtti tækifærið og sagði engan mun á Íslamska ríkinu og fylgismönnum klerksins Fethullah Gulen, sem hann segir að hafi staðið á bak við valdaránstilraunina í landinu í síðasta mánuði.

Binali Yildirim, forsætisráðherra landsins, sagði hins vegar í gær að það væri ekki víst. „Vísbendingar um árásarmanninn hafa ekki enn fundist,“ sagði Yildirim við blaðamenn. Þá sagði hann staðhæfingu Erdogans hafa verið ágiskun byggða á vitnisburði sjónarvotta. Niðurstöðu úr rannsókn á erfðaefni árásarmannsins er enn beðið. Þá er tveggja manna, sem saksóknarar segja að hafi sést skutla árásarmanninum á áfangastað, enn leitað. Mevlut Cavusoglu utanríkisráðherra sagði í gær að hreinsa þyrfti landamærin. „Við þurfum að dauðhreinsa landamærin af vígamönnum Íslamska ríkisins,“ sagði hann en tyrkneskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að sýrlenskir uppreisnarmenn, studdir af Tyrkjum, hygðust taka yfir landamæraborgina Jarablus sem er undir hæl Íslamska ríkisins.

Emine Arhan, kona sem viðstödd var árásina, missti fjögur börn á laugar­daginn. „Ef það hefði ekki verið fyrir mitt eina eftirlifandi barn væri ég búin að drepa mig,“ sagði Arhan í viðtali við tyrkneska dagblaðið Haberturk í gær.

Brúðguminn og brúðurin lifðu árásina af en eru á spítala. Veli Can, vitni, sagði í samtali við BBC að veislunni hefði verið að ljúka þegar árásin varð. „Það var blóð og líkamshlutar úti um allt,“ sagði Can.

Árásin er langt frá því að vera fyrsta stóra hryðjuverkaárásin í Tyrklandi á árinu. Í júní féllu 45 í sprengjuárás á Atatürk-flugvelli í Istanbúl og tólf í skotárás í sömu borg. Þá dóu 37 í bílsprengju í Ankara í mars og 29 í skotárás þar í febrúar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×