Innlent

Meintur innbrotsþjófur náðist á mynd

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
„Þessi braust inn hjá okkur á Hafinu Bláa í nótt,“ segir á Fésbókarsíðu veitingastaðarins Hafsins bláa við ósa Ölfusár.

Fréttablað Suðurlands greinir frá því að áfengi og fartölvu hafi verið stolið í innbrotinu á veitingastaðinn. Mynd úr öryggisvél af meintum innbrotsþjófi hefur verið dreift á Facebook. Var hún tekin klukkan 5:49 í morgun.

Er fólk beðið um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 483-1000 þekki það deili á manninum eða hafi aðrar upplýsingar.

Hér að neðan má sjá Fésbókarfærslu Hafsins Bláa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×