Innlent

Meintir hrappar sitja um sóknargjöld zúista

Snærós Sindradóttir skrifar
Zúismi er alvöru trúarbrögð úti í hinum stóra heimi. Hér á landi starfar félagið í pólitískum tilgangi. Yfirlýst markmið sitjandi stjórnar er að endurgreiða sóknargjöld til meðlima. Félagið er eitt stærsta trúfélag landsins.
Zúismi er alvöru trúarbrögð úti í hinum stóra heimi. Hér á landi starfar félagið í pólitískum tilgangi. Yfirlýst markmið sitjandi stjórnar er að endurgreiða sóknargjöld til meðlima. Félagið er eitt stærsta trúfélag landsins. vísir/afp
Sigurður Orri Kristjánsson Fréttablaðið/Valli
Fari svo að innanríkisráðuneytið úrskurði fyrrum forsvarsmönnum trúfélags zúista á Íslandi í hag varðandi stjórnarskipti í félaginu eiga þeir von á að hagnast um ríflega 33 milljónir króna.

Félag zúista starfar nú með það að markmiði að endurgreiða sóknargjöld til skráðra meðlima félagsins en þær áætlanir eru nú í uppnámi.

Samkvæmt vef Hagstofunnar eru skráðir félagar 3.087 talsins. Hvert sóknarbarn greiðir 898 krónur á mánuði til þess trúfélags sem það er skráð í eða 10.776 krónur á ári.

Fyrrum forsvarsmenn og stofnendur félagsins eru bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir sem eru grunaðir um fjármunabrot meðal annars með því að hafa aflað talsverðra fjárhæða í gegnum hópfjármögnunarsíðuna Kickstarter.

Bræðurnir hafa verið til rannsóknar héraðssaksóknara, áður sérstaks saksóknara, en Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segist í samtali við Fréttablaðið búast við því að aðalmeðferð fari fram í máli bræðranna í byrjun næsta árs.

Mál bræðranna hafa vakið mikla athygli og var meðal annars fjallað um þá í Kastljósi á síðasta ári þar sem fram kom að þeir hefðu safnað tæplega 200 þúsund dollurum, ríflega 22 milljónum króna, í nýsköpunarverkefni sem aldrei varð af. Vefsíðan lokaði á fjórðu söfnun bræðranna en töluvert tilefni þarf til að söfnun sé lokað.

Í millitíðinni auglýsti sýslumaður eftir forsvarsmönnum fyrir trúfélag bræðranna, ellegar yrði félagið lagt niður sökum fámennis. Samkvæmt lögum þurfa 25 manns að vera skráðir í trúfélag svo það teljist virkt. Ný stjórn, án nokkurra tengsla við bræðurna, tók við keflinu og hét því að endurgreiða sóknargjöld til meðlima. Á skömmum tíma varð félagið eitt stærsta trúfélag landsins.

Bræðurnir Ágúst og Einar höfðuðu þá mál á hendur Ríkissjóði Íslands til að fá greidd sóknargjöld til félagsins. Kurr er á meðal stjórnar­manna í zúistum vegna málsins enda var markmiðið með að halda félaginu gangandi ekki að einhver myndi hagnast á gjörningnum heldur að endurgreiða sóknargjöld til sóknarbarna.

„Málið er bara í biðstöðu. Það er það eina sem hægt er að segja um málið núna,“ segir Snæbjörn Guðmundsson stjórnarmaður. Stjórnin hafi reynt að stofna rekstrarreikning fyrir félagið en málið hafi reynst flóknara en gert hafi verið ráð fyrir.

„Það eru ekki allir alveg á sama máli innan stjórnsýslunnar um hvernig á að höndla þetta. Þeir leggja fram kæru til ráðuneytis og ráðuneytið hefur tekið sér tíma til að fjalla um það og greiða úr flækju sem er komin upp.“

Sigurður Orri Kristjánsson skráði sig í zúista um það leyti sem ný stjórn tók félagið yfir. „Það væri frekar fúlt ef þeir [bræðurnir] fá fjármunina frá íslenskum skattborgurum. Að svona kúl pólitískur gjörningur verði að einhverjum leikfjármunum fyrir þessa labbakúta er frekar frústrerandi.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×