Viðskipti innlent

Meint fjársvik í Lúx: Eingöngu fjárfest á grundvelli skriflegra fyrirmæla

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Franskur rannsóknardómari hefur gefið út ákæru á hendur fyrrverandi starfsmönnum Landsbankans í Lúxemborg og Björgólfi Guðmundssyni fyrrverandi formanni bankaráðs Landsbankans á Íslandi vegna samninga Landsbankans í Lúxemborg við efnaða franska viðskiptavini bankans.

Gunnar Thoroddsen fyrrverandi forstjóri Landsbankans í Lúxemborg er einn hinna ákærðu. Hann sagði í samtali við Stöð 2 að hann hefði engin skjöl séð eða fengið. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar er ekki búið að þýða ákæruskjölin úr frönsku.

Gunnar Thoroddsen fyrrverandi forstjóri Landsbankans í Lúxemborg.

Samningarnir sem um ræðir voru svokallað equity release sem gæti útleggst sem „eignalán“ á íslensku. Lánað var gegn veði í fasteign og sá sem tók lánið fékk hluta af láninu greiddan út og fól síðan bankanum eignastýringu á afganginum. Landsbankinn ráðstafaði hluta af lánunum í tiltekna skuldabréfasjóði samkvæmt fyrirmælum frá lántakanum sem í umræddum tilvikum voru allt efnamiklir franskir ríkisborgarar sem voru í viðskiptum við Landsbankann í Lúxemborg. Í mjög mörgum tilvikum var um að ræða lífeyrisþega sem áttu skuldlausar fasteignir. 

Fjárfestu í Kaupþingi

Í frétt Morgunblaðsins um eignalánin frá mars 2009 var rætt við franskan viðskiptavin Landsbankans í Lúx sem sagði hann hefði tapað sex milljónum evra á eignaláninu. Hann gagnrýndi að bankastarfsmenn hafi keypt skuldabréf í Kaupþingi viku fyrir fall bankans fyrir milljón dollara sem hann átti, þrátt fyrir að hann hefði beðið þá um að halda í þá vegna gengis dollarans. Sextíu prósent fjárins sem bankinn stýrði hafi verið bundin í skuldabréfum íslensku bankanna.

Gunnar Thoroddsen sagði við Stöð 2 að hann skildi ekki í hverju fjársvikin fælust enda fjárfesti Landsbankinn í Lúxemborg eingöngu á grundvelli skriflegra fyrirmæla frá viðskiptavinum bankans. Að mestu í alþjóðlegum skuldabréfasjóðum. Ávöxtunin á þessum sjóðum var undir væntingum og tap frönsku viðskiptavinanna eftir því.

Björgólfur Guðmundsson var formaður bankaráðs Landsbankans á Íslandi sem var móðurfélag Landsbankans í Lúxemborg.

Gunnar sagði að sér skildist að rannsóknardómarinn byggi mál sitt á því að lánstegundin hafi verið einhvers konar skipulagt svindl Landsbankans á Íslandi sem var móðurfélagið, til að fjármagna bankann sjálfan á Íslandi. Hann sagði það ekki standast þar sem eingöngu var fjárfest á grundvelli skriflegra fyrirmæla frá viðskiptavinum og í engum tilvikum runnu fjármunir til Landsbankans á Íslandi. 

Ljóst er þó að í einhverjum tilvikum var fjárfest í sjóðum sem áttu eignir á Íslandi eins og í tilviki Frakkans sem Morgunblaðið ræddi við á sínum tíma. 

Björgólfur frétti af ákærunni í fjölmiðlum

Björgólfur Guðmundsson sagði í samtali við Stöð 2 í dag að hann hefði engin skjöl séð eða fengið vegna málsins. Hann sagðist fyrst hafa frétt af því í fjölmiðlum en sagðist hafa falið frönskum lögmanni sínum að afla upplýsinga um það fyrir sína hönd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×