Fótbolti

Meiðslalisti Madrídinga lengst enn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Marcelo verður frá í allt að fjórar vikur.
Marcelo verður frá í allt að fjórar vikur. vísir/getty
Meiðslalistinn hjá Real Madrid heldur áfram að lengjast.

Marcelo og Luka Modric fóru báðir meiddir af velli í leiknum gegn Málaga á laugardaginn.

Marcelo er meiddur aftan í læri og verður frá allt í að fjórar vikur. Ekki er ljóst hversu lengi Modric verður frá.

Fyrir voru Pepe, Dani Carvajal og Gareth Bale á meiðslalistanum.

Real Madrid vann leikinn gegn Málaga með tveimur mörkum gegn einu. Madrídingar eru með 43 stig á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar, einu stigi á undan Sevilla og tveimur stigum á undan Barcelona. Real Madrid á þó leik til góða á bæði lið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×