Innlent

Meiðsl sveitarstjórans riðluðu dagskrá gönguhátíðar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hér sést Pétur í hlutverki dómara á Mýrarboltanum árið 2012.
Hér sést Pétur í hlutverki dómara á Mýrarboltanum árið 2012. mynd/mýrarboltinn og vísir/vilhelm
„Ég fékk þarna skrambi vænt spark í ökklann og þurfti að hætta keppni,“ segir Pétur Georg Markan, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, í samtali við Vísi. Pétur var að keppa á Evrópumótinu í mýrarbolta sem fram fer á Ísafirði líkt og vant er um þessa helgi.

Til stóð að Pétur myndi vera með lóðsa gesti Gönguhátíðar á Súðavík um bæinn nú klukkan fimm en sökum meiðsla hans verður það ekki hægt. Oddviti hreppsins, Anna Lind Ragnarsdóttir, stökk því inn á í hans stað og gengur með fólk um bæinn.

„Við erum svo vel mönnuð hér í bæ og hún er mikill göngugarpur svo þetta kom ekki að sök.“

Pétur var á árum áður knattspyrnumaður og lék um skeið með Fjölni, Val, Víkingi Reykjavík og BÍ/Bolungarvík. Samkvæmt upplýsingum af vef KSÍ skoraði hann á ferli sínum áttatíu mörk í 202 leikjum í deild og bikar. Hann segir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann meiðist og eflaust ekki það síðasta.

„Þetta er nú ekki svo slæmt að þetta hafi mikil áhrif. Ég fékk aðhlynningu hérna á Súðavík og verð góður eftir viku,“ segir hann. Aðspurður segir hann að stígvélin séu líklega farin upp á hillu. „Við í FC Kareoki urðum Evrópumeistarar á árum áður og núna er kominn tími á að hleypa öðrum að. Við erum nokkuð hógvært lið.“ Það er reyndar rétt að minnast á það að liðið er ekki hógværara en svo að það er komið í sjálfan úrslitaleik Mýrarboltans sem hefst núna klukkan 17.40.

Gönguhátíðin á Súðavík heldur áfram þrátt fyrir meiðsli sveitarstjórans líkt og ekkert hafi í skorist. Í kvöld verður kveikt í brennu í sundlauginni og í samkomuhúsinu verður boðið upp á hið árlega Gönguskóaball.

Íbúafjöldi Súðavíkur eykst um rúmlega helming á meðan hátíðin stendur yfir. Í fyrramálið er svo boðið upp á hafragraut með lifrarpylsu. Boðið verður upp á fjölda gangna á morgun og hinn. Nánari dagskrá má nálgast með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Fjölmargar ólíkar útihátíðir í ár

Verslunarmannahelgin er framundan og búa landsmenn sig undir stærstu ferðahelgi ársins. Þó nokkrir tóku helgina snemma og lögðu af stað úr bænum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×