Bíó og sjónvarp

Meðleigjendurnir Darryl og Thor snúa aftur

Birgir Olgeirsson skrifar
Darryl og Thor.
Darryl og Thor.
Uppáhalds meðleigjendurnir ykkar eru mættir aftur, hinn ástralski Darryl og þrumuguðinn Þór. Það vakti mikla athygli þegar Marvel sendi frá sér stuttmynd þar sem reynt var að útskýra hvað Thor var að gera á meðan flest allar hetjur Marvel-kvikmyndaheimsins börðust sín á milli í Captain America: Civil War.

Það kom í ljós að Thor var staddur í Ástralíu til að slaka aðeins á eftir að hafa bjargað mannkyninu frá vélmenninu illa Ultron. Það var þá sem áhorfendur fengu fyrst að kynnast Darryl og raunum hans í samskiptum við þrumuguðinn.

Nú er komið að þeirri stundu að Darryl er farinn að biðja Thor um að hjálpa til við að borga leiguna, en Thor virðist afar undrandi á því að Darryl taki ekki við verulega verðmætri mynt frá Ásgarði.

Thor snýr aftur í nóvember í myndinni Thor: Ragnarok en þeirri mynd munu einnig sjást hetjur á borð við Hulk og Doctor Strange.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×