Heilsa

Meðferð við ástarsorg?

sigga dögg kynfræðingur skrifar
„Breaking up is hard to do“ söng Neil Sedaka og það eru orð að sönnu
„Breaking up is hard to do“ söng Neil Sedaka og það eru orð að sönnu Mynd/Getty
Við sambandsslit getur fólk misst sjónar á raunveruleikanum og hagað sér á þráhyggjuhátt gagnvart fyrrverandi makanum. Ef það á við þig þá gæti þitt næsta skref verið að skrá þig á vefinn, Exoholics, svo þú getir deilt þessu ferli með fleirum sem eru í sömu sporum.

Vefurinn er nokkurs konar stuðningsnet af einstaklingum í ástarsorg auk þess að vera með 12 spora kerfi, ekki svo ósvipað hjá þeim sem eru alkóhólistar, til að komast yfir ástarsorgina.

Þá er mælt sérstaklega með því að telja dagana frá því að þú hafðir samband við fyrrverandi.

Þetta gæti verið einmitt það sem þig vantaði ef þú ert búin að endurhlaða fésbókarsíðu fyrrverandi sjö sinnum við lestur þessa pistils.

Ef þú vilt skilja betur af hverju heilinn þinn hagar þér svona í ástarsorginni þá gæti þetta myndaband svarað einhverjum spurningum.

Í þessu myndbandi útskýrir mannfræðingurinn Helen Fisher hvað gerist í heilanum þegar við elskum og af hverju ástarsorg er svona erfið og átakanleg.


Tengdar fréttir

Ástin krufin á facebook

Það getur verið vandasamt að vera í opinberu ástarsambandi á facebook og fáar formlegar reglur til um hvað sé viðeigandi og hvað ekki.

Sálufélagar

Ætli það sé raunveruleg til einhver ein manneskja í öllum heiminum ætluð þér og ef þú finnir sálufélagann þá verði sambandið fullkomið og ástin óendanleg?

Hefur þú gert kynlífslista?

Sumir einstaklingar gera kynlífslista sem getur innihaldið annað hvort fræga einstaklinga og/eða kynlífsathafnir, en af hverju gerum við svona lista og reynum við hversu langt göngum við til að tikka boxin?

Elskendur eða vinir?

Viðhorf þitt gagnvart maka þínum og ástarsambandinu ykkar getur skipt sköpum fyrir hamingju ykkar og velgengni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×