Tíska og hönnun

Með vinnustofuna í gömlu fjósi

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Vinnustofa Huldu er gamalt fjós sem hún gerði upp ásamt börnum sínum.
Vinnustofa Huldu er gamalt fjós sem hún gerði upp ásamt börnum sínum. Mynd/AuðunnNíelsson
„Þetta byrjaði á þessum ljóðum og textum sem ég vissi ekki hvað ég átti að gera við. Setti þau inn í dagbækurnar mínar og geymdi. Svo ákvað ég að prufa að setja textana á myndir, setti þær í sölu og það gekk rosalega vel,“ segir Hulda Ólafsdóttir, grafískur hönnuður sem stofnaði fyrirtækið Hjartalag árið 2013.

Hulda selur einnig tækifæriskort, dagatöl, hjörtu úr plexígleri, hjartalaga kertabera úr lituðu plexígleri og fleira.

Hún segir hugrekki hafa þurft til að opinbera ljóðin. „Þess vegna byrjaði ég rosalega varlega með þessum myndum og fékk svo ótrúlega góð viðbrögð að ég ákvað að þora,“ segir hún og bætir við: „Sumum líkar og öðrum ekki, ég er ekkert að reyna að höfða til allra.“

Hún segist alltaf hafa haft gaman af handverki en ljóðaáhuginn er fremur nýtilkominn. „Ljóð hafa aldrei áður höfðað til mín, mér datt aldrei í hug að lesa ljóð án þess að vera neydd til þess,“ segir hún glöð í bragði.

Hulda hafði lengi átt sér þann draum að vinna fyrir sér með hönnun sinni en vinnustofa hennar er í gömlu fjósi í kjallara heimilis hennar.

„Draumurinn átti alltaf að rætast, það var bara spurning um hvenær það hefðist.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×