Innlent

Með tvö hundruð vinabeiðnir og frægur í Þýskalandi

Bjarki Ármannsson skrifar
Davíð var í fríi með Lindu konu sinni og tveimur dætrum.
Davíð var í fríi með Lindu konu sinni og tveimur dætrum.
„Þetta hefur farið mjög vel með mig,“ segir Davíð Aron Guðnason flugvirki sem vakti athygli fjölmiðla fyrr í sumar eftir að hann gerði við farþegaflugvél sem átti að flytja hann, konu hans og dætur frá Spáni til Íslands. Engan flugvirkja var að finna þegar vélin átti að fara á loft og útlit fyrir að margra klukkutíma seinkun yrði á fluginu þegar Davíð tók til sinna ráða.

„Ég fékk bara þakkarbréf og blómvönd frá flugfélaginu,“ segir Davíð. „Og rauðvínsflaska fylgdi með.“ Primera air hefði líklega þurft að bóka hótelherbergi fyrir farþegana hundrað og áttatíu, hefði aðstoðar Davíðs ekki notið við. Hann fékk þó enga frímiða fyrir reddinguna.

„Ég skal nú alveg viðurkenna að ég var að vonast eftir því,“ segir hann léttur í bragði. „En ég er alveg sáttur.“

Frægur í Þýskalandi

Sagan af íslenska farþeganum sem gerði við eigin flugvél rataði í fjölmiðla víðsvegar um Evrópu, meðal annars á vef þýska dagblaðsins Bild.

„Þetta er búið að fara víða og ég er kominn með einhverjar tvö hundruð vinabeiðnir á Facebook, allt frá útlendingum,“ segir Davíð. „Ég á vinkonur í Þýskalandi sem eru báðar búnar að segja mér hvað það er gaman að eiga vin sem er frægur í Þýskalandi. Það er bara gaman að því.“

Þrátt fyrir að sagan hafi slegið svona rækilega í gegn, segir Davíð athyglina ekki angra sig neitt.

„Ég átti aldrei von á því að það yrði gert svona mikið úr þessu, en þetta er náttúrulega bara jákvæð frétt og skemmtileg.“


Tengdar fréttir

Íslenskur farþegi lagaði bilaðan þotuhreyfil

Davíð Aron Guðnason lét slag standa þegar tilkynnt var um nokkurra klukkustunda töf á flugi hans með Primera air frá Almería á Spáni til Íslands, skömmu fyrir flugtak í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×