Innlent

Með stolin vegabréf í Leifsstöð

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Lögreglan á Suðurnesjum handtók karlmann og konu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær, sem notuðust við stolin vegabréf. Þau voru handtekin við vegabréfsskoðun til Kanada og þegar lögreglan ræddi við þau framvísuðu þau réttum skilríkum.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að tollverðir hafi stöðvað karlmann í fyrradag. Hann framvísaði vegabréfi sem reyndist vera breytifalsað. Í farangri hans fannst annað vegabréf sem hann sagðist vera réttmætur handhafi að. Hann var einnig handtekinn og færður á lögreglustöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×