Innlent

Með ólæti og ógnandi framkomu á slysó

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn átti ekkert erindi á slysadeildina.
Maðurinn átti ekkert erindi á slysadeildina. Vísir/ernir
Lögregla handtók snemma í morgun karlmann á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann var með ólæti og ógnandi framkomu.

Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi ekki átt neitt erindi á slysadeildina. „Var hann mjög ölvaður og varð hann ekki við ítrekuðum fyrirmælum um að yfirgefa vettvang.“

Maðurinn var vistaður í fangageymslu vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×