Innlent

Með grátstafinn í kverkunum í ræðustól á eldhúsdegi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar, í pontu í kvöld.
Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar, í pontu í kvöld.
Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar, var með grátstafinn í kverkunum við upphaf þingræðu sinnar á eldhúsdegi á Alþingi í kvöld.

Nichole var á einlægu nótunum og kvaðst þakklát fyrir að flytja ræðu í eldhúsdagsumræðum en henni taldist að hún væri annar innflytjandinn af fyrstu kynslóð til að gera slíkt þar sem Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, hafði tekið til máls fyrr í umræðunum.

„Eflaust finnst ekki öllum það merkilegt en mig langar að segja ykkur af hverju mér finnst það merkilegt,“ sagði Nichole og hélt síðan áfram þar sem hún klökknaði í ræðustól þingsins.

„Það hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir mig að vera innflytjandi á Alþingi og líklega hefur það ekki farið framhjá neinum. Ég er ekki með allt á hreinu og stundum mismæli ég mig. Ég er fulltrúi fyrir flokk sem situr í ríkisstjórn á tímum þegar það er einfaldlega ekki vinsæll kostur að vera við völd. Ég hef hugsað með sjálfri mér hvort það væri ekki bara einfaldara að vera í stjórnarandstöðu því ég er eins og ég er; ég er öðruvísi,“ sagði Nichole en einhverjir muna eflaust eftir því þegar hún lokaði Facebook-reikningum sínum í mars síðastliðnum vegna svívirðinga sem gengu yfir hana á samfélagsmiðlinum.

„Ég vil ekki að fólk banki uppá hjá mér og tali svona við mig. Fyrir framan börnin mín. Með ósanngjörnum og óréttlátum hætti. Og ég vil það ekki heldur á Facebook. Þá vil ég frekar loka fyrir þetta. Ég vil hlífa fjölskyldu minni og mínum nánustu við þessu,“ sagði Nichole þá í samtali við Vísi en hún hefur aftur opnað Facebook-reikninginn.

Ræðu Nichole má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Vill Costco-þrýstinginn á Alþingi

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, ræddi samstöðu neytenda í kringum Costco og verðsamanburð á samkeppnisaðilum, í ræðu sinni á Eldhúsdagsumræðum í Alþingi í kvöld. Hún kallaði eftir því að þrýstingnum, sem neytendur setja á verslanir, yrði beitt á þingmenn.

Sigurður Ingi gagnrýndi „stefnuleysi“ ríkisstjórnarinnar

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, kallaði eftir svörum við spurningum sínum um stefnu ríkisstjórnarinnar í Eldhúsdagsumræðum í kvöld. Hann sagði ríkisstjórnina stefnulausa og ríkisstjórnarflokkana Viðreisn og Bjarta framtíð enn fremur máttlausa í samstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×