Innlent

Með dóp og vopn í bíl í Lágmúla

Vísir/Hari
Hún var heldur ógæfuleg áhöfn bílsins sem lögreglan stöðvaði í Lágmúla í Reykjavík snemma í gærkvöldi.

Ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna, slík efni fundust í fórum annars farþeganna og einhverskonar vopn í fórum hins. Ekki er tilgreint í skeyti lögreglunnar hverskonar vopn var um að ræða en tekið er fram að um brot á vopnalögum hafi verið að ræða.

Um svipað leiti olli annar dópaður ökumaður árekstri á Gullinbrú og voru báðir ökumenn bílanna fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Hvorugur þeirra mun hafa slasast alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×