Menning

Með bókverk á klósettinu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Sveinn og Guðrún á Núllinu. Þar sem opnar sýning bókverka í dag.
Sveinn og Guðrún á Núllinu. Þar sem opnar sýning bókverka í dag.
Síðustu daga hefur verið töluverður hreyfingur í gamla almennings kvennaklósettinu við Bankastræti 0. Þar eru þó ekki á ferð starfsmenn Hönnunarstofu sem glíma nú við bilanir í skólpkerfum sínum heldur listamenn er keppast við að setja upp sýningu á vegum Hönnunarmars. Langt er síðan salernunum var rudd út en húsnæðið er illa nýtt – nema fyrir einstaka listasýningar eins og nú. Mörg okkar þekkjum við það að hafa með bók á salernið - en hópurinn á bak við Dulkápuna ætlar að fara heldur nýstárlegri leið með þá athöfn.

Seinna í dag opnar nefnilega í Núllinu sýning Dulkápunnar, sem er hópur ungs listafólks er ætlar að ráðast í varðveislu og skrásetningu svokallaðra bókverka. „Það eru bækur eða einhvers konar ritefni sem er oft óaðgengileg fólki þar sem þau flokkast undir listaverk,“ útskýrir Guðrún Heiður Ísaksdóttir sem auk þess að vera ein þeirra er mannar Dulkápu-hópinn verður líka með verk á sýningunni. „Þess vegna fannst okkur mikilvægt að skapa gagnagrunn sem fólk gæti skoðað. Það er Dulkápan – netsíða sem leggur sig fram við að skrásetja svona verk“.

Hópurinn er í samstarfi við Nýlistasafnið, Listaháskólann sem skaffar verk fyrir sýninguna og síðuna. Á Dulkapan.net verður einnig vettvangur fyrir núlifandi listamenn til þess að koma nýjum bókverkum sínum á framfæri. Það á líka við grafíska hönnuði sem kannski hafa ekki framleidd prentaðar útgáfur af verkum sínum.





Gestir með plasthanska?

Á sýningunni á eftir verður að finna verk frá öllum tímum. Það elsta frá 1938. „Það hefur verið heima hjá ömmu minni í marga áratugi. Það er eftir þýskan listamann sem hét Kurt Zier. Hann var skólastjóri Mynda- og handlistarskólans lengi.“

En hversu viðkvæm eru slík bókverk? Til dæmis í þeim tilfellum sem aðeins er til eitt eintak? Verða gestir að skoða verkin með plasthönskum?  „Við hugsuðum út í það en hættum við það. Við völdum frekar verk sem má snerta með höndunum. Auk þess sem fólk kemst á síðuna okkar á sýningunni sjálfri. Við höfum reyndar verið að hugsa um það að halda seinna sérstaka hanska-sýningu – þar sem fólki verður boðið að skoða viðkvæmari verkin“.

Sýningin er haldin á gamla kvennaklósettinu, þeim megin við Bankastræti sem er nær úti taflborðinu. Þar sem það er ekki gefið leyfið fyrir því að vera með einhvers konar neðanjarðarstarfssemi svo nálægt Stjórnarráði Íslands. Á meðal þeirra sem eiga verk á sýningunni eru Dieter Roth, Halldór Sturluson, Sveinn Benediktsson, Gunnhildur Helgadóttir, Halldór Ásgeirsson, Sigurður Atli Sigurðsson og Ragnhildur Jóhannsdóttir.



Sýning opnar kl. 18 á eftir. Aðgangur er ókeypis. Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband sýngarinnar.

Hönnunarmars er á næsta leiti, styttist í opnun. #designmarch#reykjavikloves#visitreykjavik

Posted by Dulkápan on Monday, March 7, 2016





Fleiri fréttir

Sjá meira


×