Formúla 1

McLaren athugar möguleikan á að fá Mercedes vél

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Eric Boullier er viss um að McLaren væri að vinna keppnir ef Mercedes vél væri að knýja bílinn áfram.
Eric Boullier er viss um að McLaren væri að vinna keppnir ef Mercedes vél væri að knýja bílinn áfram. Vísir/Getty
McLaren hefur verið að leita á náðir Mercedes undanfarna daga með von um að reyna að komast yfir vélar frá Mercedes.

Eftir erfiðar æfingar þar sem bilarnir Honda vélarinnar voru tíðar og McLaren bíllinn komst fáa hringi; hefur McLaren farið að skoða möguleika sína.

Mögulega er McLaren að horfa til Mercedes vélanna sem ætlaðar voru Manor bílunum, sem munu svo ekki taka þátt á tímabilinu.

McLaren gaf það út þegar samstarfið við Honda hófst aftur, að það væri ekki hægt að vinna ef þú ert að versla vélar af þriðja aðila.

Keppnisstjóri McLaren, Eric Boullier sagði fyrr í vikunni að hann væri viss um að liðið væri í toppbaráttunni ef það væri með Mercedes vél.

„Já við værum farin að vinna aftur,“ sagði Boullier við spænska blaðið AS.

Það er ljóst að margt þarf að breytast ef McLaren ætlar að setja Mercedes vél um borð í bílana sína. Bíllinn er smíðaður til að passa vélinni. Auk þess eru samningar McLaren og Honda til langs tíma og það væri því erfiður skilnaður ef til þess kemur.


Tengdar fréttir

Force India kynnir bleikan bíl

Force India liðið í Formúlu 1 kynnti í dag nýtt útlit á bíl liðsins. Bíllinn sem var silfur-grár að megninu til er orðinn bleikur að mestu leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×