Golf

McIlroy sýndi styrk sinn í bráðabana

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
McIlroy er 10 milljónum Bandaríkjadollara ríkari eftir sigurinn í gær.
McIlroy er 10 milljónum Bandaríkjadollara ríkari eftir sigurinn í gær. vísir/getty
Rory McIlroy varð hlutskarpastur á Tour Championship mótinu í gær. Þetta var lokamótið á PGA-mótaröðinni en leikið var á East Lake Golf Club í Atlanta.

Norðurírski kylfingurinn tryggði sér sigurinn í bráðabana þar sem hann hafði betur gegn Bandaríkjamönnunum Ryan Moore og Kevin Chapell.

Chapell féll úr leik á fyrstu holunni en úrslitin réðust á þeirri fjórðu. Þar nældi McIlroy sér í fugl gegn pari hjá Moore.

Fyrir sigurinn fékk McIlroy FedEx bikarinn og 10 milljónir bandaríkjadollara í verðlaunafé.

Næsta verkefni McIlroys er Ryderbikarinn um næstu helgi en hann er hluti af liði Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×