Körfubolti

McHale framlengir við Houston

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
McHale var hluti af mögnuðu liði Boston Celtics á 9. áratugnum.
McHale var hluti af mögnuðu liði Boston Celtics á 9. áratugnum. vísir/afp
Kevin McHale hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Houston Rockets í NBA-deildinni vestanhafs.

McHale, sem er 57 ára, er á sínu fjórða tímabili sem þjálfari Houston, en undir hans stjórn hefur liðið unnið 153 leiki og tapað 104.

Lærisveinar McHales hafa unnið 20 leiki og tapað sjö það sem af er tímabili og sitja í 4. sæti Vesturdeildarinnar.

McHale spilaði allan sinn feril með Boston Celtics og varð þrívegis NBA-meistari með liðinu (1981, 1984, 1986).

Eftir að ferlinum lauk starfaði hann fyrir Minnesota Timberwolves, bæði sem framkvæmdastjóri og þjálfari.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×