Sport

McGregor: Ég mun klára alla mína andstæðinga

Henry Birgir Gunnarsson í Dublin skrifar
McGregor í búrinu í gær.
McGregor í búrinu í gær. vísir/getty
Conor McGregor vann hug og hjörtu írsku þjóðarinnar í gær er hann kláraði Diego Brandao í fyrstu lotu í aðalbardaga UFC-kvöldsins í gær.

Þessi strákur er mikill töffari. Hafði rifið mikinn jaft og látið öllum illum látum í aðdraganda bardagans. Hann stóð svo við stóru orðin.

"Það er draumur að rætast hjá mér. Þetta var einstakt kvöld og ég er stoltur af Írum að styðja þessa íþrótt svona vel. Næst vil ég fá alvöru mann og ég vil líka keppa á íþróttaleikvangi," sagði McGregor ákveðinn í gær og bætti við.

"Við Írar erum ekki komnir í UFC til að vera með heldur til að taka yfir sportið. Ég vil komast sem fyrst á toppinn. Ég mun klára alla andstæðinga mína."

Þjálfari McGregor er John Kavanagh en hann þjálfar einnig Gunnar Nelson. Kavanagh átti fjóra stráka sem kepptu í gær og þeir unnu allir.

"John hefur breytt lífi okkar allra. Hann er með frábæra nálgun í sinni þjálfun. Hann er ekki kallaður Guðfaðir MMA á Írlandi að ástæðulausu. Þessi maður er snillingur."

Dana White, forseti UFC, sagði fyrir helgi að hann væri ekki viss um hvort það væri kominn tími á að Gunnar Nelson myndi berjast við menn á topp tíu í sínum þyngdarflokki.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Suma þarf að brjóta niður rólega

Það var frekar fyndið að sitja blaðamannafund UFC í kvöld. Níu bardagamenn mættu á fundinn. Þeir voru margir illa farnir. Með glóðaraugu, mar og skurði. Gunnar Nelson var aftur á móti rétt sveittur. Líkt og hann hefði skotist út að skokka.

Gunnar: Maður beið eftir að þakið myndi fljúga af

Valtýr Björn Valtýsson mætti á Partývaktina á Bylgjunni í kvöld ásamt Brynjari Hafsteinsyni frá MMA-Fréttum og lýsti sigri Gunnars Nelson á Zak Cummings í UFC í kvöld og hringdi í kappann sem var að vonum kátur.

Forseti UFC vill að Gunnar fari sér hægt

Dana White, forseti UFC, sagði fyrir helgi að hann væri ekki viss um hvort það væri kominn tími á að Gunnar Nelson myndi berjast við menn á topp tíu í sínum þyngdarflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×