Golf

McGinley valdi Gallacher, Poulter og Westwood

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Ian Poulter er einn sá besti í holukeppni.
Ian Poulter er einn sá besti í holukeppni.
Paul McGinley, fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum, tilkynnti fyrir stundu lið Evrópu sem mun taka á móti Bandaríkjamönnum í Ryder-bikarnum síðar í mánuðinum. McGinley gat valið þrjá kylfinga inn í lið sitt og valdi Skotann Stephen Gallacher og Englendinganna Ian Poulter og Lee Westwood.

Níu kylfingar spiluðu sig beint inn í lið Evrópu en McGinley tilkynnti svo um þá þrjá síðustu á blaðamannafundi á Gleneagles golfvellinum í Skotlandi þar sem Ryder-bikarinn fer fram í lok mánaðarins.

McGinley hafði úr mörgum sterkum kylfingum að velja. Meðal þeirra sem ekki fá sæti í liði Evrópu eru meðal annars Luke Donald, Miguel Angel Jimenez, Francesco Molinari og einnig öldunginn Bernhard Langer sem hefur leikið frábærlega á öldungamótaröðinni í Bandaríkjunum.

„Ég er mjög heppinn að hafa úr svona miklum hæfileikum að velja,“ sagði McGinley í dag. „Þetta var mjög erfitt val. Ég tel mig hafa valið þrjá kylfinga sem munu gera Evrópuliðið eins sterkt og það getur orðið til að berjast við sterkt lið Bandaríkjanna.“



Luke Donald verður ekki með í Ryder-bikarnum í ár.
Donald svekktur

Helst vekur athygli að Englendingurinn Luke Donald situr eftir með sárt ennið. Hann hefur raunar átt slæmu gengi að fagna í ár en hefur verið góður í liði Evrópu í síðustu keppnum. McGinley greindi frá því að hann hefði hringt í Donald til að tjá honum val sitt. Donald var skiljanlega afar svekktur en sagðist standa þétt við bakið á fyrirliðanum og liði Evrópu í keppninni.

Gallacher er að leika í fyrsta sinn fyrir Evrópu í Ryder-bikarnum. Hann hefur áður leikið fyrir Evrópu í öðrum liðakeppnum en hefur ekki unnið leik í sjö leikjum. Gallacher þarf því að sanna sig á Gleneagles vellinum í Skotlandi í lok september.

Tom Watson, fyrirliði Bandaríkjanna, mun tilkynna lið sitt í kvöld í beinni útsendingu frá New York.

Lið Evrópu í Ryder-bikarnum 2014:

Rory McIlroy, Norður-Írland

Henrik Stensson, Svíþjóð

Victor Dubuisson, Frakkland,

Jamie Donaldson, Wales

Sergio Garcia, Spánn

Justin Rose, England

Martin Kaymer, Þýskaland

Thomas Bjørn, Danmörk

Graeme McDowell, Norður-Írland

Ian Poulter, England

Lee Westwood, England

Stephen Gallacher, Skotland

Ryder-bikarinn fer fram 26.-28. september. Mótið verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×