Lífið

McConaughey hylltur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
McConaughey skálar með Jimmy Kimmel og dóttur sinni.
McConaughey skálar með Jimmy Kimmel og dóttur sinni.
Leikarinn Matthew McConaughey hlaut American Cinematheque-verðlaunin á þriðjudaginn en þau eru veitt framúrskarandi listamönnum í skemmtanabransanum sem „einsetja sér að leggja fram eitthvað sem skiptir máli til kvikmyndalistarinnar“. McConaughey hefur starfað sem leikari í Hollywood í 22 ár.

Í verðlaunaafhendingarveislunni á Hilton-hótelinu í Beverly Hills deildi leikarinn reynslu sinni með gestum og leiðrétti ýmsan misskilning. „Mér var ekki boðið hlutverkið í Titanic,“ sagði hann.

„Fyrsta reglan: handrit með tíu milljónir dala áfastar er fyndnara en sama handritið með einungis eina milljón áfasta. Í öðru lagi verður maður að gera ráð fyrir að uppbygging handritsins hjálpi manni við leikinn,“ bætti McConaughey við og sagði sögu af sjálfum sér við upphaf ferils síns, þegar hann var mjög upptekinn af því að leika „eðlilega“ og las ekki handritið fyrr en hann mætti á tökustað. „Þá komst ég að því að minn hluti var tveggja blaðsíðna eintal á spænsku.“

Þriðja reynslan sem McConaughey vildi deila snerist um að mæta með börnin sín í upptökuverið. Snemma á leikferlinum taldi hann það vera slæma hugmynd. Þetta viðhorf hans breyttist þegar hann eignaðist loksins börn. „Mér finnst alveg frábært að hafa börnin mín með á tökustað.“

Fjölmargar stjörnur gerðu góðlátlegt grín að leikaranum svo sem Kate Hudson, Reese Witherspoon, vinur hans Woody Harrelson og Sandra Bullock, sem las upp ljóð eftir sig. Leikstjórinn Richard Linklater, sem leikstýrði McConaughey í Dazed & Confused og The Newton Boys, hafði þetta að segja: „Hann fór aldrei úr bolnum, í hvorugri myndinni.“

Grínarinn Jimmy Kimmel var kynnir kvöldsins og gerði auðvitað góðlátlegt grín að leikaranum. „Hann er ekki bara snoppufríður,“ sagði hann, „hann er líka með æsandi kropp.“ Undir lokin skáluðu þeir Kimmel og McConaughey síðan í Miller Lite-bjór á sviðinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×