Körfubolti

McCarthy skoraði 42 í sigri Snæfells | Úrslitin og lokastaðan

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kristin McCarthy átti stórleik.
Kristin McCarthy átti stórleik. vísir/stefán
Grindavík tryggði sér síðasta sætið í úrslitakeppni Dominos-deildar kvenna með heimasigri á Val, 80-77, í spennandi leik í kvöld. Allt um hann má lesa hér.

Deildarmeistarar Snæfells, sem eru jafnframt ríkjandi Íslandsmeistarar, luku deildinni með stórsigri á nýliðum Breiðabliks sem eru fallnir úr deildinni, 92-57.

Kristin McCarthy skoraði 42 stig fyrir Snæfell í Smáranum í kvöld en Gunnhildur Gunnlaugsdóttir bætti við 20 stig og tók 10 fráköst. Arielle Wiedman skoraði 23 stig og tók 10 fráköst fyrir Blika.

Snæfell mætir Grindavík í undanúrslitum en Keflavík mætir Haukum. Keflavík vann stórsigur á Hamri, 111-61, á útivelli, þar sem Carmen Tyson-Thomas fór á kostum eins og svo oft áður. Hún skoraði 30 stig, tók 14 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.

LeLe Hardy bauð svo upp á enn eina tröllatvennuna fyrir Hauka, en hún skoraði 25 stig, tók 21 frákast og gaf 7 stoðsendingar í sigri á KR, 69-52

Lokastaðan: Snæfell 50, Keflavík 44, Haukar 36, Grindavík 34, Valur 30, Hamar 12, KR 11, Breiðablik 7.

Úrslit og tölfræði lokaumferðarinnar:

Haukar-KR 69-52 (10-8, 29-15, 15-12, 15-17)

Haukar: LeLe Hardy 25/21 fráköst/7 stoðsendingar, María Lind Sigurðardóttir 10, Sólrún Inga Gísladóttir 8, Dagbjört Samúelsdóttir 6, Þóra Kristín Jónsdóttir 6/7 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 5/11 fráköst/6 stoðsendingar, Rósa Björk Pétursdóttir 2, Rakel Rós Ágústsdóttir 2, Guðrún Ósk Ámundadóttir 2/4 fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 2, Anna Lóa Óskarsdóttir 1.

KR: Simone Jaqueline Holmes 15/4 fráköst, Bergþóra Holton Tómasdóttir 11/6 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 6/5 fráköst/7 stoðsendingar, Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir 6/5 fráköst, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 5, Sólrún Sæmundsdóttir 5, Sara Mjöll Magnúsdóttir 4/4 fráköst.

Breiðablik-Snæfell 57-92 (23-30, 12-27, 8-22, 14-13)

Breiðablik: Arielle Wideman 23/10 fráköst/5 stoðsendingar, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 10/7 fráköst, Berglind Karen Ingvarsdóttir 9/4 fráköst, Hlín Sveinsdóttir 5, Aníta Rún Árnadóttir 3, Elín Kara Karlsdóttir 3, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2/6 fráköst/7 varin skot, Isabella Ósk Sigurðardóttir 2/10 fráköst.

Snæfell: Kristen Denise McCarthy 42/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 20/10 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 6, Berglind Gunnarsdóttir 6/8 fráköst/5 stoðsendingar, Hildur Sigurðardóttir 6/7 fráköst/9 stoðsendingar, María Björnsdóttir 5/4 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 5/4 fráköst, Anna Soffía Lárusdóttir 2.

Hamar-Keflavík 61-111 (12-26, 19-33, 17-24, 13-28)

Hamar: Sydnei Moss 17, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 15/9 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 11/5 fráköst/5 stoðsendingar, Helga Vala Ingvarsdóttir 8, Vilborg Óttarsdóttir 5, Jenný Harðardóttir 3, Hafdís Ellertsdóttir 2.rsdóttir 0, Jóna Sigríður Ólafsdóttir 0, Erika Mjöll Jónsdóttir 0.

Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 30/14 fráköst/7 stoðsendingar, Marín Laufey Davíðsdóttir 16/7 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 13, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 11/4 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 11/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 8, Hallveig Jónsdóttir 6, Lovísa Falsdóttir 4/8 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 4, Svanhvít Ósk Snorradóttir 3, Bríet Sif Hinriksdóttir 3, Irena Sól Jónsdóttir 2.

Grindavík-Valur 80-77 (23-21, 16-22, 18-11, 23-23)

Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 28/10 fráköst, Kristina King 18/7 fráköst/7 stoðsendingar, Pálína María Gunnlaugsdóttir 18/9 fráköst, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 7/6 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 4/5 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 3/4 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 2/5 stoðsendingar.

Valur: Taleya Mayberry 28/5 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 16, Kristrún Sigurjónsdóttir 11/7 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 8/5 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 7/13 fráköst/7 stoðsendingar, Ragnheiður Benónísdóttir 7/5 fráköst.

Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega stóð að KR hefði fallið með Breiðabliki en það er ekki rétt. Aðeins eitt lið fellur úr deildinni. Beðist er velvirðingar á þeim mistökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×