Fótbolti

Mbappé rekinn heim af síðustu æfingu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kylian Mbappé er mjög eftirsóttur.
Kylian Mbappé er mjög eftirsóttur. vísir/getty
Kylian Mbappé var rekinn af æfingu Monaco í síðustu viku eftir að hafa rifist við liðsfélaga sinn.

Mbappé var ekki í leikmannahópi Monaco þegar frönsku meistararnir unnu 1-0 sigur á Metz á föstudaginn. Mikil óvissa ríkir um framtíð Mbappés en hann hefur m.a. verið orðaður við Real Madrid og Paris Saint-Germain.

L'Equipe greinir frá því að Mbappé hafi verið sendur heim af æfingu Monaco-liðsins í síðustu viku eftir að hafa lent saman við ítalska varnarmanninn Andrea Raggi.

Hinn 18 ára gamli Mbappé hefur ekkert spilað með Monaco síðan í 3-2 sigri á Toulouse í 1. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar 4. ágúst.

Mbappé sló í gegn á síðasta tímabili þegar hann skoraði 26 mörk fyrir Monaco sem varð franskur meistari og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×