Sport

Mayweather lítur vel út á æfingu | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mayweather ætlar ekki að tapa fyrir Conor.
Mayweather ætlar ekki að tapa fyrir Conor. vísir/getty
Floyd Mayweather æfir af krafti þessa dagana fyrir bardagann gegn Conor McGregor og lítur skrambi vel út.

Mayweather er orðinn fertugur og ekki keppt í tvö ár. Hann hefur engu að síður haldið sér í formi og er enn eldsnöggur.

„Ég get fengið glóðarauga, blóðnasir og lélegan dag í ræktinni. Á endanum fæ ég vel útborgað og ég á aldrei lélegan dag undir ljósunum,“ sagði Mayweather við sjálfan sig á æfingu sem var opin fyrir fjölmiðla.

Það dylst engum að Mayweather tekur þennan bardaga alvarlega enda miklu meira undir hjá honum en Conor sem hefur aldrei barist í atvinnumannabardaga í hnefaleikum.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×