Sport

Mayweather launahæsti íþróttamaður heims | Ronaldo fær meira en Messi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hann er ekki kallaður Floyd "Money" Mayweather fyrir ekki neitt.
Hann er ekki kallaður Floyd "Money" Mayweather fyrir ekki neitt. Vísir/Getty
Samkvæmt árlegri launakönnun ESPN The Magazine, tímarits íþróttasamsteypunnar ESPN, er hnefaleikakappinn Floyd Mayweather Jr. langlaunahæsti íþróttamaður heims.

Þrátt fyrir að hnefaleikar hafi dalað mikið í vinsældum er Mayweather mjög eftirsóttur og fær ríkulega launað fyrir sín störf. Hann barðist tvívegis í fyrra og fékk fyrir það samtals 73,5 milljónir dala eða jafnvirði 8,2 milljarða króna.

Í launakönnun ESPN The Magazine er ávallt aðeins litið til launa og/eða verðlaunafés íþróttamannanna og eru launatölur ekki hluti af því. Þetta eru sem sagt ekki heildartekjur íþróttamannanna heldur aðeins það sem þeir fá frá vinnuveitendum sínum.

Ronaldo fær aðeins hærri laun en Messi.Vísir/Getty
Knattspyrnukapparnir CristianoRonaldo og Lionel Messi eru í öðru og þriðja sæti. Portúgalinn fær 5,7 milljarða króna í laun frá Real Madrid, ögn meira en Messi fær frá Barcelona en Katalóníurisinn ætlar nú að kippa því í liðinn á næstunni.

Zlatan Ibrahimovic er svo fimmti á listanum með 4 milljarða króna í laun frá Paris Saint-Germain en Wayne Rooney er svo síðasti knattspyrnumaðurinn sem kemst á topp 25 listann.

Á meðal þeirra tíu efstu má finna fimm leikstjórnendur úr NFL-deildinni í amerískum fótbolta, þrjá knattspyrnumenn, einn körfuboltamann (KobeBryant) og einn hnefaleikakappa.

Bandaríska hafnaboltaliðið Los Angeles Dodgers er það lið sem borgar hæstu launin og í öðru sæti er stórveldið New York Yankees. Manchester City, Barcelona og Real Madrid koma þar á eftir.

Heildarlistann í uppsetningu ESPN The Magazine má sjá hér.

Tíu launahæstu íþróttamenn heims

Íþróttamaður - íþróttagrein - laun í milljónum dala (íslenskra króna)

1. Floyd Mayweather Jr., hnefaleikar - 73,5 (8,2 millj.)

2. Cristiano Ronaldo, knattspyrna - 50,2 (5,7 mlja.)

3. Lionel Messi, knattspyrna - 50,1 (5,6 mlja.)

4. Aaron Rodgers, amerískur fótbolti - 40 (4,5 mlja.)

5. Zlatan Ibrahimovic, knattspyrna - 35 (4 mlja.)

6. Matthew Stafford, amerískur fótbolti - 31,5 (3,6 mlja.)

7. Tom Brady, amerískur fótbolti - 31 (3,5 mlja.)

8. Kobe Bryant, körfubolti - 30,5 (3,4 mlja.)

9.-10. Matt Ryan, amerískur fótbolti - 30 (3,3 mlja.)

9.-10. Joe Flacco, amerískur fótbolti - 30 (3,3 mlja.)

 

Fyrir neðan topp tíu:

12.-13. Fernando Alonso, Formúla 1 - 27,5 (3,1 mlja.)

12.-13. Lewis Hamilton, Formúla 1 - 27,5 (3,1 mlja.)

15. Wayne Rooney, knattspyrna - 26 (2,9 mlja.)

Liðin sem borga mest:

1. Los Angeles Dodgers, hafnabolti - 241 (27 mlja.)

2. New York Yankees, hafnabolti - 209 (23,5 mlja.)

3. Manchester City, knattspyrna - 202 (22,7 mlja.)

4. Barcelona, knattspyrna - 194 (21,8 mlja.)

5. Real Madrid, knattspyrna - 190 (21,4)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×