Sport

Mayweather er hræddur við mig

Amir Khan.
Amir Khan. vísir/getty
Floyd Mayweather hefur gefið það út að síðasta bardagi ferilsins verði gegn Andre Berto. Þeir sem vildu slást við Mayweather eru fúlir að fá ekki bardaga.

Þeirra á meðal er Bretinn Amir Khan sem hafði sótt það afar fast að fá bardaga gegn Mayweather. Skiljanlega þar sem slíkur bardagi gefur vel í aðra hönd.

Khan reif kjaft og lét öllum illum látum til þess að ná athygli Mayweather en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann er sár og svekktur.

„Ég er til í að mæta Mayweather hvar og hvenær sem er en hann er hræddur við mig," sagði Khan. „Eitt sem er öruggt um Amir Khan er að hann er aldrei hræddur við neinn."

Khan hefur unnið 31 af 34 bardögum sínum og fáir höfðu trú á því að hann gæti unnið Mayweather sem hefur aldrei tapað á ferlinum.

Box

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×