Sport

Mayweather enn ósigraður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Floyd Mayweather sýndi enn og sannaði í nótt að hann er einn besti hnefaleikakappi sögunnar. Hann hafði þá betur gegn Manny Pacquaio á stigum og er því enn ósigraður á nítján ára atvinnumannaferli sínum í alls 48 bardögum.

Mayweather er almennt talinn besti hnefaleikamaður sinnar kynslóðar og hann sjálfur vill meina að hann sé sá besti í sögunni. Fáir deila um að hann sé í hópi þeirra allra bestu sem stundað hafa íþróttina.

Hann er nú handhafi allra stóru titlanna í veltivigt. Hann varði WBA, WBC og The Ring titlana sína og vann WBO-titilinn af Pacquaio.

Bardaginn gaf af sér ótrúlegar tekjur en talið er að beinar tekjur af honum (miðasala, sjónvarpstekjur, matvörur og varniningur á staðnum) nemi 500 milljónum Bandaríkjadala - jafnvirði 65,5 milljarða króna. Talið er að Mayweather fái 23,5 milljarða króna í vasann fyrir kvöldið.

Bardagans í nótt hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda hefur Pacquaio lengi þótt einn fárra sem hafi getuna til að fella Mayweather af stalli sínum. Það gerðist ekki í nótt.

Vísir/Getty
Bardagi þeirra stóð yfir í tólf lotur og þurfti því stigagjöf dómara til að fá niðurstöðu. Allir þrír dómararnir dæmdu Mayweather öruggan sigur. Hjá tveimur dómurum hafði sá bandaríski betur, 116-112, og 118-110 hjá þeim þriðja.

Pacquaio, sem er frá Filippseyjum, var vel studdur af áhorfendum í Las Vegas. Hann ólst upp í fátækt en er nú einn þekktasti íþróttamaður heims, stjórnmálamaður í heimalandinu og vinsæll poppsöngvari þar að auki. Hann söng sjálfur lagið sem ómaði undir í innkomu hans fyrir bardagans.

Hann náði góðu höggi á Mayweather í fjórðu lotu en átti erfitt með að vinna bug á andstæðingi sínum, sem varðist fimlega eins og hann hefur gert allan sinn feril.

„Ég hélt að ég hafi náð fleiri höggum á hann en hann á mig. Stiganiðurstaðan kom mér verulega á óvart,“ sagði Pacquaio eftir bardagann en Mayweather hrósaði andstæðingi sínum.

„Hann er erfiður. Ég þurfti að taka mér tíma og fylgjast afar náið með hverri hreyfingu,“ sagði Mayweather sem var í raun í bílstjórasætinu allan bardagann.

Vísir/Getty
Þjálfari Pacquaio, Freddie Roach, sagði eftir bardagann að sinn maður hafi meiðst á öxl þremur til fjórum vikum fyrir bardagann og það hafi háð honum í nótt. Hann hefur fengið bólgueyðandi sprautur síðustu vikurnar en fékk ekki leyfi til að fá sprautu fyrir bardagann í gærkvöldi, þótt hann hafi óskað þess.

Mayweather á einn bardaga eftir af samningi sínum við bandarísku sjónvarpsstöðirnar CBS og Showtime og Mayweather sagði í nótt að hann ætlaði sér að berjast næst í september. Eftir það mun hann hætta.

Ef hann vinnur síðasta bardagann sinn verður árangur hans 49 sigrar og ekkert tap. Rocky Marciano, sem keppti í þyngdarvigt á sjötta áratug síðustu aldar, státar af sama árangri og er eini heimsmeistari sögunnar í þeim þyngdarflokki sem aldrei tapaði bardaga.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×