Formúla 1

Max Verstappen sá yngsti frá upphafi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Max Verstappen - Til hamingju með daginn!
Max Verstappen - Til hamingju með daginn! Vísir/Getty
Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag.

Verstappen bætir met ríkjandi heimsmeistara Sebastian Vettel. Verstappen verður 17 ára og þriggja daga á föstudaginn. Met Vettel setti hann þegar hann var 19 ára og 53 daga og ók fyrir BMW í Tyrklandi 2006.

Einhverjir hafa efast um getu Verstappen og þroska til að aka Formúlu 1 bíl en Helmut Marko, ráðunautur Red Bull liðsins segir að Verstappen minni um margt á hinn goðsagnakennda Ayrton Senna.

„Ég hlakka mikið til að taka þátt í æfingu fyrir keppnishelgi í fyrsta skiptið,“ sagði ungi ökumaðurinn.

„Faðir minn hefur keppt á Suzuka mörgum sinnum og hann segir að þetta sé ekki auðveld braut til að byrja á. Fyrir mér er þetta verðmæt reynsla að verja smá tíma í bílnum og læra að vinna með fólkinu í liðinu, það mun gagnast mér vel sem undirbúningur fyrir næsta ár. Ég er ekki að fara að setja nein met, ég vil bara sækja mér reynslu,“ sagði Verstappen.

Faðir hans er Jos Verstappen fyrrum Formúlu 1 ökumaður sem hætti keppni fyrir 11 árum síðan.

Verstappen mun taka sæti Jean-Eric Vergne hjá Toro Rosso á næsta ári. Vergne leitar nú að sæti fyrir næsta ár og hefur verið orðaður við Sauber, en það á eftir að skírast þegar nær líður vertíðarlokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Hamilton vann í Singapúr - Rosberg kláraði ekki

Lewis Hamilton á Mercedes vann kappaksturinn í Singapúr. Hann náði þar með forystu í stigakeppni ökumanna. Sebastian Vettel varð annar og liðsfélagi hans hjá Red Bull, Daniel Ricciardo varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×