Innlent

Maurar fundust á Landspítalanum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Farómaurar eru agnarsmáir. Þeir þekkjast á Íslandi en hafa ekki komið upp áður á Landspítalanum.
Farómaurar eru agnarsmáir. Þeir þekkjast á Íslandi en hafa ekki komið upp áður á Landspítalanum.
Farómaurar hafa fundist á nokkrum stöðum í einu af húsum Landspítalans við Hringbraut. Á meðal deilda í húsinu eru framleiðslueldhús spítalans, heilbrigðistæknideild og trésmíðaverkstæði. RÚV greindi fyrst frá.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hefur málið verið tilkynnt til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar og Sóttvarnalæknis. Eitrað verður fyrir maurnum og er það gert í samráði við meindýraeyði Reykjavíkurborgar. Afar mikilvægt er að ráða niðurlögum maursins en hann getur bæði verið smitberi og valdið skaða á  meðferðartækjum.

Þá hafa verið flutningar úr húsinu þar sem maurarnir komu upp til annarra deilda og húsa spítalans.

Farómaur er þekktur á Íslandi en hefur aldrei komið upp á Landspítalanum áður. Líklegt er talið að hann hafi borist með varningi á spítalann. Gera má ráð fyrir að það geti reynst erfitt að eiga við maurinn vegna aðstæðna á spítalanum þar sem hann þrífst best í hita og raka.

Guðrún Sigmundsdóttir hjá sóttvarnalækni staðfesti að embættinu hefði borist tilkynning um málið.

„Það hefur ekkert þessu líkt komið inn á borð til okkar áður en mér skilst að þessi maur þekkist á spítölum erlendis. Ég hef áhyggjur af þessu en veit að það er verið að vinna í málinu á Landspítalanum. Það gæti þó tekið sinn tíma,“ segir Guðrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×