Handbolti

Mattias Andersson sá um Kiel

Anton Ingi Leifsson skrifar
Andersson var frábær í kvöld.
Andersson var frábær í kvöld. Vísir/Getty
Flensburg vann glæstan sigur á Kiel í nágrannaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Mattias Andersson gjörsamlega lokaði markinu og varði hvert skotið á fætur öðru.

Heimamenn í Flensburg voru sterkari aðilinn og voru 15-11 yfir í hálfleik. Þeir voru komnir í 17-11 þegar gestirnir rönkuðu við sér. Kiel skoraði þá fimm mörk í röð og gátu jafnað metin, en Mattias Andersson varði eins og berserkur.

Flensburg náðu þá aftur undirtökunum og þegar átta mínútur voru eftir leiddu þeir með þremur mörkum, 22-19. Kiel náði ekki að brúa það bil og mikilvægur sigur Flensburg staðreynd. Lokatölur 26-22 sigur Flensburgar.

Aron Pálmarsson átti fínan leik fyir Kiel en hann skoraði fimm mörk. Kiel fellur niður í annað sætið eftir þetta tap og Rhein-Neckar Löven kemst á toppinn án þess að spila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×