Lífið

Matti og Magni héldu uppi stuðinu í brekkusöngnum

Hátt í fjögur þúsund manns mættu og tóku undir í brekkusöngnum á Írskum dögum á Akranesi í gærkvöldi. Söngvararnir Matti Matt og Magni Ásgeirsson stýrðu brekkusöngnum og tókst þeim vel upp, líkt og sést á meðfylgjandi myndskeiðum sem Friðgeir Bergsteinsson tók upp.

Sjá einnig: Laufey Heiða er rauðhærðasti Íslendingurinn

Að sögn aðstandenda hefur veður verið gott á bæjarhátíðinni og enginn gist fangageymslur lögreglunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×