Sport

Matthildur setti nýtt Íslandsmet

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mynd/Jón Björn
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir úr ÍFR keppir lenti í 5. sæti í 400 metra hlaupi í flokki T37 á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í dag en mótið fer fram í Swansea í Wales.

Matthildur Ylfa kom í mark á tímanum 1:12,86 sem er besti tími hennar í 400 metra hlaupi. Hún var rúmlega sex sekúndum á eftir Evgeniya Trushnikova frá Rússlandi sem kom í mark á 1:06,35.

Matthildur var síðasti íslenski keppandinn á mótinu en mótinu lýkur á morgun.


Tengdar fréttir

Matthildur Ylfa lenti í 6. sæti

Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir var á ferðinni í dag þegar hún keppti í langstökki í flokki T37.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×