Sport

Matthías Íslandsmeistari í skvassi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Allir meistararnir saman komnir á einni mynd.
Allir meistararnir saman komnir á einni mynd. vísir/skvass-samband Íslands
Matthías Jónsson varð í gær Íslandsmeistari í skvassi, en Íslandsmótinu lauk í gær. Víðir Þór Þrastarson vann svo til gullverðlauna í nýliðaflokki.

Í úrslitaleiknum mætti Matthías bróðir sínum Þorbirni Jónssyni, en leikurinn var rosalegur og réðust úrslitin í fimmtu lotu. Matthías hafði þá betur 3-2, en þetta er talinn einn besti úrslitaleikurinn í manna minnum.

Í nýliðaflokkinum reyndist Víðir hlutskarpastur. Hann vann Inga nokkuð örugglega, 3-0, en leikurinn var þó mikil skemmtun.

Hér að neðan má sjá nokkur myndbönd frá mótinu, en hér má finna fleiri myndbönd.

Meistarinn Matthías í eldlínunni: Nýliðameistarinn, Víðir, í eldlínunni:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×