Bíó og sjónvarp

Matthew McConaughey í óbeislaðri, íslenskri náttúru

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stórleikarinn Matthew McConaughey er vígalegur á að sjá á nýjum plakötum fyrir kvikmyndina Interstellar sem frumsýnd verður á Íslandi 7. nóvember.

Myndin, sem er leikstýrt af Christopher Nolan, var tekin upp að hluta til hér á landi síðasta haust, til dæmis á Svínafellsjökli.

Rúmlega þrjú hundruð manna tökulið vann við myndina, þar á meðal hundrað Íslendingar en það var íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm sem aðstoðaði við tökurnar.

Í öðrum hlutverkum í Interstellar eru Matt Damon, Anne Hathaway, Jessica Chastain og Casey Affleck.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×