Golf

Matt Every varði titilinn á Bay Hill eftir magnaðan lokahring

Every var í banastuði í gær.
Every var í banastuði í gær. Getty
Matt Every er ekki talinn einn af sterkustu kylfingum PGA-mótaraðarinnar en það er eitthvað við að spila á hinum sögufræga Bay Hill velli sem dregur fram það besta í honum.

Every lék frábært golf á lokahringnum í gær og kom inn á 66 höggum eða sex undir pari. Það dugði honum til þess að verja titilinn á Arnold Palmer Invitational, einu sterkasta móti á PGA-mótaröðinni á árinu.

Hann lék hringina fjóra á 19 höggum undir pari en Henrik Stenson, sem leiddi fyrir lokahringinn, endaði í öðru sæti á 18 höggum undir pari. Stenson nagar sig eflaust í handbökin en tvö þrípútt á lokaholunum í gær kostuðu hann mikið.

Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, var meðal þátttakenda um helgina en nokkur klaufamistök urðu til þess að hann var ekki í baráttu efstu manna á lokahringnum í gær. Hann endaði jafn í 11. sæti á 11 höggum undir pari en þetta er síðasta mótið sem hann tekur þátt í áður en Masters mótið fer fram snemma í apríl.

Fyrir sigurinn fékk Matt Every rúmlega 140 milljónir króna og þátttökurétt á stærstu mótum ársins en næsta mót á PGA-mótaröðinni er Valero Texas Open og hefst það á fimmtudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×