Lífið

Matt Damon og Ben Affleck rífast um hvor þeirra sé betri vinur Tom Brady

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Damon, Brady og Affleck.
Damon, Brady og Affleck. Vísir/Getty
Leikararnir Matt Damon og Ben Affleck eru perluvinir og hafa verið það um árabil. Svo virðist þó sem að stjörnuleikstjórnandinn Tom Brady hafi nýverið komið upp á milli þeirra ef marka má myndbandið sem sjá má hér að neðan.

Þar rífast þeir félagar um hvor þeirra sé meiri vinur Tom Brady en Ben Affleck hefur farið mikinn að undanförnu í að verja Brady í hinu svokallaða Deflate-gate en Brady var sakaður um að hafa tekið þátt í því þegar lið hans, New England Patriots, braut reglur með því að taka loft úr keppnisboltum fyrir leik í úrslitakeppninni NFL.

Líklegt þykir þó að rifrildi þeirra félaga sé þó meira til gamans gert en í því eru þeir, ásamt Brady, að safna pening fyrir góðgerðarmál sem eru Brady hjartans mál.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×