Heilsa

Matarræðið skiptir miklu meira máli en hreyfingin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjórði þáttur Meistaramánuðar 2017 var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöld en þátturinn er í umsjón Pálmars Ragnarssonar.

Í þættinum fengu áhorfendur að hlusta á hvernig markmiðin gengu hjá nokkrum vel þekktum Íslendingum.

Rætt var við Geir Gunnar Markússon, næringarfræðing, sem fór vel yfir það hvernig best er að koma næringunni á rétta braut. Hann segir að það sé nauðsynlegt að við Íslendingar minnkum sykurinntöku og að matarræðið skipti mun meira máli en hreyfingin ætli fólk sér að léttast.

Einnig var rætt á ný við Gunnar Svanbergsson, sjúkraþjálfari, sem fór yfir líkamsstöðu fólks og hvað maður ætti að forðast á þeim vettvangi.

Pálmar heyrði að vanda í sérfæðingum þáttarins sem eru; Anna Steinsen, markþjálfi og eigandi KVAN, Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur, Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði og Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka.

Hér að ofan má sjá þáttinn og einnig má sjá myndir inni á Instagram sem koma undir kassamerkinu #meistaram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×