Matur

Khoresht Bademjan: Matargerð sem gleður bæði líkama og sál

Eva Laufey skrifar
visir.is/shutterstock
Vala Matt heimsækir íranskt eldhús

Í lokaþætti Sælkeraheimsreisu Völu Matt í Reykjavík heimsótti hún arkitektinn Ali sem kynnti henni fyrir persneskri matargerð sem er bæði litrík og bragðmikil. Hér eru uppskriftir úr þættinum. Kjúklinga- og eggaldinréttir sem allir ættu að geta leikið eftir.

KHORESHT BADEMJAN

6 eggaldin

250 g olía

1,5 kg kjúklingalæri

2 laukur

1 dós tómatpúrra

3 dósir niðursoðnir tómatar

2 tsk túrmerik

2 msk salt

1 msk pipar

5 – 6 þurrkuð persnesk límóna

1/2 tsk saffran

Aðferð:

Hitið olíu, steikið laukinn og kjúklinginn í nokkrar mínútur. Bætið tveimur dósum af niðursoðnum tómötum, tómatpúrru og túrmerik út í pottinn og kryddið til með salti og pipar. Sjóðið í þrjátíu mínútur. Soðið í 30 mínútur.  Bætið því næst þriðju dósinni af niðursoðnum tómötum og límónunni út í.

Eggaldin eru skorin í sneiðar. Salt sett á sneiðarnar í 10-15 mínútur til að gera þau sætari og fá vatnið úr þeim með því að þerra þau. Olía sett í ofnfast fat og eggaldin sneiðunum raðað í botninn og þau sett í ofninn og grilluð. 

Síðan eru eggaldinsneiðarnar settar í botn á ofnfati og kjúklingakássan sett yfir og aftur eggaldin sett yfir og svo meira af kássunni og svo að lokum eggaldinsneiðar ofan á. Saffranvökvinn sem var í hrísgrjónunum er settur yfir efsta lagið af eggaldinunum, svona þrjár teskeiðar. Fatið sett inní ofn í 45 mínútur við mjög lágan hita.

HRÍSGRJÓN

1 kg. basmati hrísgrjón

5 msk. olía til steikingar

2 msk. salt

1 stór kartafla niðurskorin

1/2 tsk. saffran

Aðferð:

Skerið kartöfluna í sneiðar og steikið upp úr olíu í smá stund. Hrísgrjónin hafa verið soðin til hálfs í tíu mínútur og síðan sett í sigti og vatninu hellt yfir þau. Síðan eru grjónin sett út í pottinn ofan á kartöflurnar. Grjónin eru sett upp eins og fjall í pottinum. Hitinn er lækkaður undir pottinum. Svo er saffran sett í vatnsglas og glasið sett í miðjuna á grjónunum í pottinum. Leyft að malla í einn og hálfan klukkutíma við mjög lágan hita. Viskustykki er sett utanum lokið á pottinum og sett á pottinn. 

KOOKOO BADEMJAN

4 eggaldin

200 g olía til steikingar

3 egg

1 laukur

salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Eggaldin sett í blandara eða matvinnsluvél. Laukurinn steiktur og settur út í blandara/matvinnsluvél. Eggin eru sett út í  og kryddið með salti og pipar. Allt maukað saman. Tvær teskeiðar af saffran vökvanum. Allt sett í ofnfast fat sem búið er að smyrja með olíu og sett í ofninn. 

Jógúrtsósa

500 g grískt jógúrt

2 hvítlauksgeirar

Fersk myntublöð

1/4 agúrka

Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Setjið hreina jógúrt í skál og skerið agúrku niður í litla bita og blandið saman við ásamt hvítlauk, myntu, salti, pipar og örlitlu vatni. Blandið vel saman og berið fram.


Tengdar fréttir

Uppskriftir úr Sælkeraheimsreisunni

Vala Matt fór nýlega af stað með nýja þáttaröð á Stöð 2, Sælkeraheimsreisuna. Þar heimsækir hún fólk hvaðanæfa að úr heiminum og eldar með þeim dýrindis máltíðir. Í síðasta þætti heimsótti hún fjölskyldu frá Nepal sem býr hér á landi.

Spennandi matargerð frá suður-ameríku í þætti Völu Matt

Vala Matt heldur áfram að heimsækja sannkallaða sælkera í Reykjavík og í síðasta þætti sínum heimsótti hún suður-amerískt eldhús. Ceviche með löngu, bragðmikil chili sósa og nautakjötsréttur voru réttir kvöldsins að þessu sinni.

Coq au Vin kjúklingapottréttur

Í síðasta þætti Sælkeraheimsreisu Völu Matt heimsótti hún hina frönsku Dominique og fræddist um ljúffenga matargerð frá heimalandi hennar. Hún útbjó klassískan Coq au vin kjúklingapottrétt sem allir geta leikið eftir og bragðast dásamlega.

Vala Matt kynnist taílenskri matargerð

Uppskrift að ljúffengum vefjum með grænmeti og bragðmiklu karrímauki. Úr síðasta þætti Sælkeraheimsreisunnar þar sem Vala Matt fékk að kynnast matargerð frá Tælandi og heimsótti þær Warapon Chanse og Patcharee Raknarong.

Einfalt og gott sushi

Vala Matt fékk að kynnast japanskri matargerð í síðasta þætti Sælkeraheimsreisunnar sem sýndir eru á þriðjudagskvöldum á Stöð 2. Sushi er sennilega eitt það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar minnst er á japanskan mat og í þættinum fékk Vala uppskrift af mjög einföldum sushirétt sem tilvalið er að bera fram í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×