Matur

Matarbloggari með uppskrift af indverskri vetrarsúpa

Marín Manda skrifar
Tinna Björg Friðþórsdóttir, matarbloggari
Tinna Björg Friðþórsdóttir, matarbloggari

Tinna Björg Friðþórsdóttir heldur úti blogginu tinnbjorg.com. Matar- og kökugerð eiga hug hennar allan þegar hún er ekki að læra lögfræði í HR. Á blogginu sínu deilir hún ýmsum húsráðum ásamt matar- og kökuuppskriftum sem hún hefur sankað að sér í gegnum tíðina. Hér deilir hún uppskrift að indverskri vetrarsúpu og grófum speltbollum.

Uppskrift

1 1/2 rauðlaukur

3 hvítlauksrif

olía

1 lítil sæt kartafla

4 gulrætur

5 msk. milt karrýmauk

2 tsk. karrý

4 msk. tómatpúrra

1 1/2 dl kókosflögur 

1 dós kókosmjólk

700-800 ml vatn

grænmetiskraftur 

salt

svartur pipar

Tinna Björg Friðþórsdóttir

Aðferð

  • Skerið rauðlauk í bita og steikið í stórum potti með olíu ásamt pressuðum hvítlauk í 5 mínútur eða þar til rauðlaukurinn verður mjúkur.
  • Afhýðið og skerið sæta kartöflu og gulrætur í teninga. Bætið teningunum í pottinn og steikið áfram í nokkrar mínútur.
  • Hrærið karrýmauki, karrýi og tómatpúrru saman við grænmetið ásamt kókosflögum.
  • Hellið kókosmjólk og vatni í pottinn og hitið að suðu.
  • Smakkið súpuna til með grænmetiskrafti, salti og svörtum pipar og látið krauma við vægan hita í 45 mínútur.
  • Takið að lokum pottinn af hellunni og maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
  • Magnið af grænmetiskrafti fer eftir tegund því hann er misjafnlega saltur. Þess vegna hef ég þá þumalputtareglu að setja alltaf kraftinn fyrst og svo saltið.
Tinna Björg Friðþórsdóttir

Grófar speltbollur

5 dl gróft spelt

1 dl fimm korna fræblanda

1 1/2 tsk lyftiduft

1 tsk. sjávarsalt

2 dl ABmjólk

1 1/2-2 dl heitt vatn

Aðferð

  • Blandið spelti, fræblöndu, lyftidufti og sjávarsalti saman í skál og hrærið ABmjólk og vatni saman við. Mótið í hæfilega stórar bollur og sáldrið fræjum yfir.
  • Bakið við 200°C í 20-25 mínútur.
  • Deigið á að vera blautt og klístrað þegar bollurnar eru mótaðar.
  • Í staðinn fyrir að dreifa úr speltbollunum á bökunarplötunni baka ég þær saman í klasa, þannig haldast þær mýkri. Þegar ég á ekki til ABmjólk hef ég stundum í hallæri notað hreint skyr eða gríska jógúrt hrista saman við smá mjólk.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×