Enski boltinn

Mata hetja United í Manchester-slagnum | Sjáðu markið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Manchester United vann samborgara sína í Manchester City, 1-0, í 16 liða úrslitum enska deildabikarsins í fótbolta í kvöld. United náði þannig aðeins að svara fyrir sig eftir 4-0 skellinn gegn Chelsea í deildinni á sunnudaginn.

Juan Mata skoraði eina mark leiksins á 54. mínútu eftir laglega sókn heimamanna. Zlatan Ibrahimovic gaf fyrir frá vinstri, Ander Herrera steig út varnarmann gestanna og samlandi hans Mata skoraði með föstu skoti af stuttu færi, 1-0.

Manchester United stillti nánast upp sínu sterkasta liði í kvöld en Zlatan, Pogba, David De Gea, Marcus Rashford, Juan Mata og Herrera voru allir í byrjunarliðinu. Guardiola hvíldi fleiri lykilmenn.

United-liðið var að vinna sinn fyrsta leik á Englandi síðan það lagði Leicester í lok september en það var án sigurs í þremur leikjum í deildinni áður en kom að sigrinum í kvöld.

Eftir frábæran byrjun og tíu sigra í fyrstu tíu leikjunum er Pep Guardiola í smá basli með City-liðið en það er nú búið að spila sex leiki í öllum keppnum án þess að vinna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×