Golf

Masters-meistarinn nýtur sín á toppnum | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jordan Spieth í Empire State byggingunni.
Jordan Spieth í Empire State byggingunni. Vísir/Getty
Jordan Spieth hefur haft í nóg að snúast síðan að hann fagnaði sigri á Mastersmótinu í golfi á sunnudaginn en sigur hans var bæði sögulegur og mjög glæsilegur.

Þessi 21 árs kylfingur vann hug og hjörtu allra þeirra sem á horfðu og menn eru þegar farnir að bera hann saman við Tiger Woods.

Jordan Spieth heimsótti New York borg í gær þar sem hann var gestur í spjallþætti David Letterman en hann skellti sér líka í heimsókn í Empire State bygginguna þar sem ljósmyndar Getty nýttu tækifærið og tóku af honum myndir.

Jordan Spieth var að sjálfsögðu í græna jakkanum sem hann hafði dreymt um að klæðast síðan hann var smástrákur. Græna jakkann fá þeir sem vinna Mastersmótið, fyrsta risamót ársins í golfinu.

Empire State byggingin var hæsta bygging heims í næstum því 40 ár og er ein þekktasta bygging heims.

Masters-meistarinn naut sín vel á toppnum eins og sjá má í þessum myndum hér fyrir neðan.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Jordan Spieth uppfyllti æskudrauminn og sigraði á Masters

Sigraði fyrsta risamót ársins með fjórum höggum eftir magnaða frammistöðu á Augusta National vellinum alla helgina. Hélt ró sinni og gerði það sem þurfti til þess að sigla sigrinum heim á lokahringnum í kvöld

Jordan Spieth fór á kostum á fyrsta hring á Augusta

Fékk níu fugla og kom inn á 64 höggum eða átta undir pari en hann leiðir með þremur höggum á næstu menn. Tiger Woods fór rólega af stað í endurkomunni en sýndi oft á tíðum gamalkunna takta.

Jordan Spieth áfram í sérflokki á Masters

Hélt áfram að spila frábært golf og leiðir með fimm höggum eins og er. Tiger Woods átti fínan dag og er meðal efstu manna en Spieth hefur þægilegt forskot þrátt fyrir að margir góðir kylfingar eigi eftir að koma inn.

Jordan Spieth enn í bílstjórasætinu á Masters

Leiðir með fjórum höggum þegar að einn hringur er eftir. Justin Rose og Phil Mickelson eru í aðstöðu til þess að berjast um sigurinn á morgun ef pressan reynist of mikil fyrir Spieth.

Jack Nicklaus er mjög ánægður með Jordan Spieth

Jordan Spieth, nýkrýndur Masters-meistari í golfi, hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu og framgöngu enda spilaði hann frábærlega frá fyrsta degi og vann Masters-mótið á 18 höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×