Phil Mickelson er í baráttunni fyrir lokadaginn á Mastersmótinu.
GETTY IMAGES / NORDIC PHOTOS
Miklar sviptingar einkenndu þriðja keppnisdaginn á Mastersmótinu í golfi þar sem að sænski kylfingurinn Peter Hanson tyllti sér í efsta sætið fyrir lokadaginn. Hanson er á -9 samtals en Phil Mickelson frá Bandaríkjunum, þrefaldur meistari á þessu móti, sýndi einnig frábær tilþrif og er hann einu höggi á eftir. BandaríkjamaðurinnTiger Woods og Norður-Írinn Rory McIlroy eru langt á eftir efstu mönnum fyrir lokahringinn.
Peter Hanson lék frábært golf á þriðja keppnisdeginum. Alls fékk hann 8 fugla og einn skolla á hringnum og endaði hann á 65 höggum. Samtals er hann á -9 en hann bætti sig um 9 högg á milli annars og þriðja keppnisdags. Þetta er aðeins í annað sinn sem Hanson er að keppa á Mastersmótinu.
Phil Mickelson, sem hefur sigrað þrívegis á þessu móti, hefur hægt og bítandi komið sér í aðstöðu til þess að sigra í fjórða sinn á þessu risamóti. Mickelson lék á 66 höggum eða -6 á þriðja keppnisdeginum og hann er samtals á -8. Mickelson lék á +2 á fyrsta keppnisdeginum eða 74 höggum og hann var á 68 höggum á öðrum keppnisdegi mótsins.
Peter Hanson, er 35 ára gamall, og besti árangur hans á stórmóti er 7. sætið á opna bandaríska meistaramótinu í fyrra. Hann hefur sigrað fjórum sinnum á Evrópumótaröðinni en aldrei á bandarísku PGA mótaröðinni. Hanson er ekki eini sænski kylfingurinn sem er að leika á vel á Mastersmótinu. Henrik Stenson er á -4.
Hinn 52 ára gamli Fred Couples sýndi þreytumerki á þriðja keppnisdeginum. Bandaríkjamaðurinn var efstur þegar keppni var hálfnuð á -5 ásamt landa sínum Jason Dufner. Þeir gerðu enga stóra hluti þegar mest á reyndi. Couples tapaði þremur höggum á þriðja hringnum og er því á -2 fyrir lokahringinn. Dufner gerði það nákvæmlega sama og lék á 75 höggum og er hann á -2.
Rory McIlroy var í tómu rugli á síðari 9 holunum á þriðja keppnisdegi og lék hann á 42 höggum. Hann lék samtals á 77 höggum og aðeins frábær fugl á lokaholunni var fagnaðarefni fyrir McIlroy. Hann er samtals á +1 og er hann ekki líklegur til þess að fá græna jakkann í ár eftir að hafa leikið á 71, 69 og 77 höggum.
Svínn Peter Hanson er efstur fyrir lokadaginn á Mastersmótinu 2012.
GETTY IMAGES / NORDIC PHOTOS
Tiger langt frá sínu besta Tiger Woods er á sama stað og í gær, eða á +3, en hann lék á pari vallar á þriðja hringnum. Tiger Woods baðst afsökunar á framferði sínu á öðrum keppnisdeginum þar sem hann sparkaði m.a. í golfkylfur og lét öllum illum látum.
Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku, sem sigraði á opna breska meistaramótinu árið 2010, þokaði sér í hóp efstu manna með því að leika á -3. Hann er samtals á -7 og er til alls líklegur.
Bubba Watson er einnig í aðstöðu til þess að blanda sér í baráttuna um græna jakkann. Hinn gríðarhögglangi Watson er samtals á -6 en hann hefur aldrei náð að sigra á stórmóti.
Matt Kuchar frá Bandaríkjunum er á -5 fyrir lokadaginn en hann lék þriðja hringinn á 70 höggum eða -2.
Padraig Harrington er á réttri leið eftir magurt gengi á golfvellinum undanfarin misseri. Írinn, sem tvívegis hefur sigrað á opna breska meistaramótinu, er á -4 og gæti blandað sér í baráttuna á lokadeginum. Harrington þokaði sér upp um 18 sæti á milli keppnisdaga. Hunter Mahan frá Bandaríkjunum sem er í fjórða sæti heimslistans náði einnig að fara upp um 18 sæti en hann er á -5.
Lee Westwood, sem er í þriðja sæti heimslistans, er á -4 en hann hefur enn ekki náð að sigra á stórmóti á ferlinum.
Luke Donald, efsti maður heimslistans, hefur afskrifað möguleika sína á sigri á Augusta en Englendingurinn lék á 75 höggum á þriðja keppnisdeginum. „Ég batt miklar vonir við þessa viku. Það er ekkert verra en að vakna á sunnudegi og vita að ekkert mun duga til þess að koma sér í baráttuna um sigurinn," sagði hinn 34 ára gamli Donald sem er samtals á 7 höggum yfir pari valllar. Hann hefur aldrei náð að sigra á stórmóti og það er ljóst að biðin eftir þeim stóra er ekki á enda hjá Donald.
Suður-Afríkumaðurinn Charl Schwartzel, sem hefur titil að verja, mun ekki verja titilinn en hann er samtals á +6 eftir að hafa leikið á 72, 75 og 75.
Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.
Ţađ andar köldu á milli kylfinganna Tiger Woods og Sergio Garcia ţessa dagana. Á ţađ rćtur ađ rekja til atviks á Players-meistaramótinu á dögunum.
Meira
Ólafía Ţórunn Kristinsdóttir hefur í dag leik í landsúrslitum bandaríska háskólagolfsins NCAA í Georgíufylki. Hún er sjötti kylfingurinn í sögu Wake Forest-háskólans í Norđur-Karólínufylki sem kemst ţ...
Meira
Birgir Leifur Hafţórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garđabćjar, tók ţátt í úrtökumóti fyrir Nordea Masters mótiđ sem fram fer á Evrópumótaröđinni um nćstu mánađamót. Um 100 kylfingar kepptu ...
Meira
Í dag lauk fyrsta móti sumarsins á Íslandsbankamótaröđ unglinga í golfi sem fram fór á Ţorláksvelli í Ţorlákshöfn. Leikiđ var í ţremur aldursflokkum hjá báđum kynjum.
Meira
Keppni á Íslandsbankamótaröđ unglinga í golfi er í fullum gangi á Ţorláksvelli í Ţorlákshöfn. Leikiđ er í ţremur aldursflokkum hjá báđum kynjum og í morgun léku tveir aldursflokkar hjá strákunum.
Meira
Belginn Nicolas Colsaerts lenti í heldur betur óvenjulegu atviki ţegar hann var viđ keppni á Volvo Match Play mótinu á evrópsku mótaröđinni í golfi. Í leik sínum gegn Norđur-Íranum Graeme McDowell ţá ...
Meira
Kylfingurinn Rocco Mediate greindi frá ţví í sjónvarpsţćtti David Feherty á Golf Channel ađ hann hefđi fleygt ljósmynd af sér og Tiger Woods, međ áritun Woods, í rusliđ.
Meira
Kristján Benedikt Sveinsson úr Golfklúbbi Djúpavogs og Gísli Sveinbergsson úr Keili léku á pari á fyrri hring fyrsta stigamóts sumarins á Íslandsbankamótaröđ unglinga í Ţorlákshöfn í gćr.
Meira
Ungur kylfingur úr Keili í Hafnarfirđi, Bryndís María Ragnarsdóttir gerđi sér lítiđ fyrir og fór á holu í höggi í sínu fyrsta höggi á fyrsta stigamóti unglinga sem leikiđ er um helgina í Ţorlákshöfn.
Meira
Tiger Woods tryggđi sér í kvöld sigur á Players-golfmótinu međ ţví ađ spila lokadaginn á 70 höggum eđa tveimur höggum undir pari. Woods lék tveimur höggum betur en nćstu menn sem voru Svíinn David Lin...
Meira
Sergio Garcia kenndi öskrum áhorfenda um misheppnađ högg sem varđ til ţess ađ forysta hans á Players-mótinu fór fyrir bý. Garcia og Tiger Woods spiluđu saman ţriđja hringinn á mótinu í gćr.
Meira
Kylfingar á höfuđborgarsvćđinu eru farnir ađ munda kylfurnar og vel ţađ ţví margir af stćrstu golfvöllum svćđisins verđa opnađir í dag eđa um helgina.
Meira
Ye Wocheng, tólf ára kínverskur áhugakylfingur, varđ í dag sá yngsti í sögunni til ţess ađ keppa á Evrópumótaröđinni. Wocheng vill ţó líklega gleyma frumrauninni sem allra fyrst.
Meira
Guđmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri á Leirdalsvelli, segir ađ veđur ţurfi ađ batna til muna eigi kylfingar ađ geta hafiđ leik á vellinum ţann 9. maí eins og vonir standa til.
Meira
Kvenkylfingurinn Brittany Lang var ekki alveg í sínu besta formi á LPGA-móti í Texas en dagurinn hjá henni á golfvellinum endađi aftur á móti mjög vel.
Meira
Kínverskir kylfingar halda áfram ađ setja aldursmet í golfinu en nú er ljóst ađ hinn tólf ára gamli Ye Wocheng verđur yngsti kylfingurinn til ađ keppa á Evrópumótaröđinni í golfi ţegar hann keppir á V...
Meira
Adam Scott endurskrifađi sögu ástralska kylfinga í gćr međ ţví ađ verđa fyrsti Ástralinn til ađ vinna Mastersmótiđ í golfi. Fram ađ ţessu leit hreinlega út fyrir ađ ţađ lćgju álög á áströlskum kylfing...
Meira
Ástralinn Adam Scott tryggđi sér sigur á Mastersmótinu í gćr eftir bráđabana á móti Argentínumanninum Angel Cabrera. Nú er hćgt ađ sjá svipmyndir frá lokadeginum inn á Sjónvarpsvef Vísis eđa međ ţví a...
Meira
Adam Scott vann í gćr Mastersmótiđ í golf og fékk ađ klćđast grćna jakkanum fyrstur Ástrala. Hann sagđi eftir sigurinn ađ Greg Norman ćtti ţátt í ţessum titli ţví hann vćri sá sem ástralskir kylfingar...
Meira