Bílar

Mastercard vill kortleggja viðskiptahætti bíleigenda

Finnur Thorlacius skrifar
Vill safna upplýsingum fyrir tryggingafélög og auglýsingafyrirtæki.
Vill safna upplýsingum fyrir tryggingafélög og auglýsingafyrirtæki.
Það tekur ekki margar innkaupaferðir eða heimsóknir á söluvefi til að hægt sé að kortleggja áhugasvið og kaupgetu hvers og eins, svo lengi sem einhver tekur þessi gögn saman. Það er einmitt það sem Mastercard hefur áhuga á að gera um bíleigendur.

Þessar upplýsingar hyggst Mastercard safna fyrir aðila eins og tryggingafélög og fyrirtæki sem starfa á auglýsingamarkaði. Ekki hljómar þetta ýkja huggulega og er enn eitt dæmið um að „stóri bróðir“ veit allt um okkur og vill vita aðeins meira.

Mastercard svarar gagnrýnisröddunum með því að mun ódýrara sé að safna gögnum á þennan hátt en með könnunum og úthringingum. Með þennan ásetning að leiðarljósi hefur Mastercard sótt um einkaleyfi í Bandaríkjunum á tæknilausn sem gerir slíkar rannsóknir mögulegar. Það var vefurinn 
Free Patents Online  sem vakið hefur athygli á þessari umsókn Mastercard og er greinilega ekki hrifið af áætlunum þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×