Gagnrýni

Massive Attack stóð fyrir sínu

Baldvin Þormóðsson skrifar
Hljómsveitin Massive Attack sýndi sínar bestu hliðar á Secret Solstice um helgina.
Hljómsveitin Massive Attack sýndi sínar bestu hliðar á Secret Solstice um helgina. Vísir/Stefán
Tónleikar Massive Attack

Tónlistarhátíðin Secret Solstice



Massive Attack voru án efa langstærsta nafnið á Secret Solstice og stóðu gjörsamlega undir öllum væntingum hátíðargesta. Þrátt fyrir að hafa verið starfandi í 26 ár þá er tvíeykið enn þá með sama einkennandi hljóm í tónlist sinni þannig að það fór ekki fram hjá neinum hvaða hljómsveit var á sviði.

Sveitin var líka með langskemmtilegasta og jafnframt langflottasta show-ið af öllum tónlistarmönnum hátíðarinnar. Massive Attack hafa alltaf verið rammpólitískir og nota tónlist sína til þess að koma sínum skilaboðum á framfæri og það gerðu þeir á laugardaginn.

Á risastórum LED-ljósaskjá sem staðsettur var á bak við hljómsveitina mátti í einu laginu greina fyrirtækjalógó stórfyrirtækja á borð við Coca-Cola, Nestlé, Össurar og Marel. Í öðru lagi sínu höfðu þeir fengið fyrirsagnir úr íslenskum fjölmiðlum á borð við „Íhugar að borða fylgjuna“ og fyrirsagnir sem fjölluðu um Tobbu Marinós og Völu Grand.

Allt í allt voru tónleikarnir næstum því fullkomnir og blaðamaður er enn þá tárvotur eftir að sveitin tók 90‘s slagarann Teardrop.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×