Formúla 1

Massa fljótastur og McLaren í vandræðum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Felipe Massa var fljótur á Williams bílnum í dag, bíllinn virðist hafa mikið grip.
Felipe Massa var fljótur á Williams bílnum í dag, bíllinn virðist hafa mikið grip. Vísir/Getty
Felipe Massa á Williams varð fljótasti maður dagsins. Þriðja og síðasta æfingalotan fyrir Formúlu 1 tímabilið hófst á Katalóníubrautinni í dag.

Massa velti Lewis Hamilton úr sessi sem lengst af átti besta tíma dagsins. Hamilton endaði þriðji. Marcus Ericsson á Sauber endaði daginn annar. Ericsson setti ofur mjúk dekk undir bílinn eftir hádegismat og skellti í hring sem tók 0,776 sekúndum lengri tíma en hraðasti hringur Massa.

Daniil Kvyat varð fjórði á Red Bull bílnum. Tæpum tveimur og hálfri sekúndu á eftir Massa. Hamilton nái aðeins að aka 48 hringi, sem er lakasti dagur Mercedes liðsins á æfingum í ár.

Dagur Mercedes liðsins var þó lautarferð í samanburði við dag McLaren, glussakerfis bilun batt enda á akstur liðsins í dag eftir aðeins 7 hringi.

Til að bæta gráu ofan á svart tilkynnti Ron Dennis, keppnisstjóri liðsins að óvíst væri hvort Fernando Alonso tæki þátt í ástralska kappakstrinum. Alonso lenti harkalega á varnarvegg á sunnudaginn við áreksturinn missti ökuþórinn meðvitund. Hann er nú kominn heim af sjúkrahúsinu en hefur verið skipað að taka lífinu með ró næstu daga. Varaökumaður liðsins, Kevin Magnussen mun aka fyrir Alonso í loka æfingalotunni.


Tengdar fréttir

Árekstur Alonso vindinum að kenna

Fernando Alonso lenti í harkalegu samstuði við varnarvegg á loka degi annarrar æfingalotu fyrir komandi tímabil.

Alonso setur sér markmið eftir fyrstu keppni

Fernando Alonso, ökumaður McLaren-Honda segist ekki ætla að setja sér markmið fyrir tímabilið fyrr en hann hefur séð hvað bíllinn getur í alvöru. Hann býst við að það verði í kringum kínverska kappaksturinn.

Grosjean fljótastur á Lotus

Romain Grosjean á Lotus varð fljótastur á lokadegi æfingalotunnar. Hann var á ofur mjúkum dekkjum. Pastor Maldonado varð fljótastur á Lotus á degi þrjú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×