Formúla 1

Massa: Flott að enda framar en Ferrari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Massa sér fram á að Williams klári tímabilið með glans.
Massa sér fram á að Williams klári tímabilið með glans. Vísir/Getty
Felipe Massa kveðst vongóður að Williams liðið nái að skáka hans gamla liði Ferrari í stigakeppni bílasmiða. Hann segir að það væri mjög jákvætt fyrir Williams.

Brasilíumaðurinn telur að hann hafi yfirgefið Ferrari á réttu augnabliki. Hann virðist hafa hitt naglann á höfuðið þegar hann veðjaði á Williams.

Ferrari bíllinn hefur ekki haft mörg svör við snerpu Williams bílsins í ár.

„Það var mjög mikilvægt fyrir mig að fara. Stundum eru breytingar góðar. Ég þurfti klárlega á þessu að halda, þó að sumir hlutir eigi enn eftir að smella saman hér,“ sagði Massa.

Williams liðið náði sér þó ekki almennilega á strik fyrr en nýlega. Í upphafi tímabils glímdi liðið við alls kyns vandamál sem nú virðast leyst.

Valtteri Bottas, hinn ökumaður liðsins fór þó mikinn í framúrakstri í fyrstu keppninni, en lenti svo á vegg og tapaði fullt af sætum í kjölfarið.

„Nú berjumst við um sæti við Ferrari. Tækifærið til að enda tímabilið fyrir ofan Ferrari er til staðar. Það er það sem við viljum,“ hélt Massa áfram.

„Að koma frá lélegu ári eins og í fyrra og enda hugsanlega í topp þremur sætunum í keppni bílasmiða, fyrir framan stórlið eins og Ferrari er virkilega jákvætt,“ sagði Massa að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Heimamaður vann á Hockenheim

Nico Rosberg á Mercedes vann þýska kappaksturinn um helgina. Það var í fyrsta sinn sem þjóðverji vinnur Formúlu 1 keppni í Þýskalandi í þýskum bíl. Hvað eru mörg Þ í því?

Williams vill fara að vinna keppnir

Frammistöðustjóri Williams liðsins, Rob Smedley segir að liðið eigi að stefna á að vinna í næstu tvem keppnum.

Bottas: Mercedes gæti fundið fyrir FRIC banni

Valtteri Bottas, ökumaður Williams telur að Mercedes liðið verði fyrir mestum áhrifum ef tengd fram og aftur fjöðrun (FRIC) verður bönnuð. Bottas telur að bannið myndi ekki hafa áhrif á Williams liðið.

Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt

Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×