Formúla 1

Massa: Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton vann þriðju keppnina í röð í Brasilíu í dag. Hann er þá 12 stigum á eftir Nico Rosberg sem varð annar í dag. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Ég vil byrja á að þakka áhorfendum sem gáfust ekki upp fyrir rigningunni. Ég átti frekar rólega keppni fremst. Það var aðeins um það að bílar væru að sigla ofan á pollum. Eina dramað hjá mér í dag var að smá vatn kom inn í hjálminn hjá mér. Þetta var einn auðveldasti kappaksturinn sem ég hef unnið,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum.

„Þetta gekk ekki hjá mér í dag. Lewis stóð sig vel, en ég get lifað með öðru sætinu í dag. Ég lenti í smá atviki en það slapp þar sem ég snérist haálfpartinn en það slapp fyrir horn,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum.

„Upp að ráslínunni var hált. Ég náði að halda bílnum þegar hann fór að renna þar. Ég er afar glaður að enda á verðlaunapallinum,“ sagði Max Verstappen sem náði ótrúlegu þriðja sæti í dag, þrátt fyrir afleidda keppnisáætlun Red Bull liðsins.

„Lewis og Nico voru eins góðir og þeir gátu verið. Max Verstappen var ótrúlegur, hann sannaði enn og aftur í dag hvað hann er afburðagóður,“ sagði Niki Lauda ráðgjafi Mercedes liðsins.

„Þetta var einn besti akstur sem ég hef séð í Formúlu 1. Max ók síðustu 15 hringina á ótrúlegan hátt. Hann þráði bara greinilega að komast á verðlaunapallinn. Hann átti verðlaunapallinn skilið í dag,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull.

„Það er erfitt að útskýra tilfinninguna sem fylgir því að ná ekki að klára keppnina fyrir aðdáendur mína sem eru hér. Það er eins og Guð hafi ákveðið að ég ætti að stoppa þarna til að kveðja áhorfendur. Það var sérstakt að sjá önur lið standa vörð þegar ég kom gangandi framhjá. Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi,“ sagði Felipe Massa sem því miður lauk ekki keppninni í dag eftir að hafa lent á varnarvegg.

„Ég get ekki lýst gleði minni og það er sérstakt að þetta hafi gerst hér. Mér líður eins og við höfum unnið,“ sagði Felipe Nasr sem varð níundi í dag á Sauber og náði í fyrstu tvö stig liðsins í ár.


Tengdar fréttir

Hamagangur í Brasilíu | Sjáðu uppgjörsþáttinn

Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir hádramatískan brasilískan kappakstur, þar sem Lewis Hamilton hélt titlbaráttunni á lífi.

Lewis Hamilton vann í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í Brasilíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Max Verstappen varð þriðji með ótrúlegum akstri á Red Bull bílnum.

Lewis Hamilton á ráspól í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir brasilíska kappaksturinn. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×